Ingi Freyr: Gunnar Smári gaf starfsfólki ranga mynd af stöðu Fréttatímans

Gunnar Smári Egilsson sannfærði starfsfólk um það í febrúar síðastliðnum að rekstur Fréttatímans væri tryggður, og talaði fólk ofan af því að taka öðrum starfstilboðum. Á þeim tíma hafði ekki verið greitt í lífeyrissjóði fyrir starfsfólk í nokkra mánuði.

Auglýsing
Gunnar Smári Egilsson
Gunnar Smári Egilsson

Frétta­tím­inn hefur ekki greitt í líf­eyr­is­sjóð fyrir að minnsta kosti hluta af starfs­mönnum sínum frá því síðla árs í fyrra. Þetta segir Ingi Freyr Vil­hjálms­son, blaða­maður á Frétta­tím­an­um, í pistli á Stund­inni.  Þetta kemur til við­bótar því að hluti starfs­manna hefur ekki enn fengið greidd laun sem áttu að greið­ast um síð­ustu mán­aða­mót. Ingi Freyr er einn þeirra. 

Ingi Freyr segir í pisli sínum að Gunnar Smári Egils­son, þáver­andi rit­stjóri og útgef­andi Frétta­tím­ans, hafi sagt við starfs­fólkið í febr­úar síð­ast­liðnum að fram­tíð fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins væri tryggð. Hann hafi talað starfs­fólk á blað­inu af því að taka atvinnu­fyr­ir­tækjum frá öðrum fyr­ir­tækjum og hækkað laun. 

Nú í apr­íl, eftir að rekstr­ar­erf­ið­leikar Frétta­tím­ans urðu fjöl­miðla­efni og blaðið hætti að koma út, sagði Gunnar Smári starfs­mönnum hins vegar frá því að Frétta­tím­inn hefði verið „í nauð­vörn“ rekstr­ar­lega frá því í októ­ber á síð­asta ári. Þá hefur einnig komið í ljós að um svipað leyti, síðla árs í fyrra, hætti Frétta­tím­inn að greiða í líf­eyr­is­sjóð fyrir að minnsta kosti hluta af starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins. Myndin sem starfs­menn Frétta­tím­ans fengu af rekstr­ar­stöðu blaðs­ins var því allt önnur en sú rétta,“ skrifar Ingi Freyr. 

Auglýsing

Greint var frá því fyrr í vik­unni að Frétta­tím­inn yrði settur í þrot á næstu dög­um. „Nú er Frétta­tím­inn á leið­inni í gjald­þrot með til­heyr­andi fjár­hags­legum skaða fyrir starfs­menn blaðs­ins, hlut­hafa þess, kröfu­hafa og íslenska rík­ið.“ 

Það voru ekki bara starfs­menn blaðs­ins sem fengu ranga mynd af rekstr­in­um, segir Ingi Freyr, heldur líka hlut­hafar og flestir aðr­ir. „Hann hélt stöðu fyr­ir­tæk­is­ins mjög þétt að sér enda hefur verið ljóst lengi að rekst­ur­inn stæði ekki undir sér­.“ 

Þegar rekst­ur­inn var kom­inn í óefni og ljóst að blaðið gat ekki haldið áfram að koma út vegna tap­rekstrar og fjár­skorts þá var Gunnar Smári sá fyrsti af starfs­mönn­unum sem yfir­gaf fyr­ir­tæk­ið, segir Ingi Freyr, „og not­að­ist í upp­hafi við þá tylli­á­stæðu að hann væri að fara að stofna sós­í­alista­flokk en svo breytti hann sögu sinni þannig að hann hefði verið rek­inn.“ Aðrir hlut­hafar  Frétta­tím­ans hafi hins vegar haldið áfram að benda starfs­mönnum blaðs­ins á að tala við Gunnar Smára og fram­kvæmda­stjór­ann um stöð­una, sem sé venju­lega ekki gert þegar búið sé að reka menn. „Nið­ur­staðan hlýtur að vera sú að Gunnar Smári hafi sjálfur tekið ákvörðun um að hætta dag­legum störfum fyrir Frétta­tím­ann þegar í óefni var kom­ið. Eftir sitja hlut­haf­ar, kröfu­hafar og starfs­menn með fjár­hags­legt tap af og hinir síð­ast­nefndu eru í algjörri óvissu um tekju­öflun sína á næstu mán­uð­u­m.“ 

Ekki skrýtið að starfs­fólki blöskri og sárni

Ingi Freyr segir að starfs­fólk Gunn­ars Smára og Frétta­tím­ans hafi spurt hann hvort það gæti ekki komið niður á trú­verð­ug­leika blaðs­ins að rit­stjóri og eig­andi blaðs­ins væri með Face­book-­síðu sem hann kenndi við Sós­í­alista­flokk Íslands. Þetta hafi verið um svipað leyti og hann hafi sagt starfs­fólk­inu að rekst­ur­inn væri tryggður í vet­ur. 

„Gunnar Smári svar­aði því til að þetta væri bara Face­book-grúppa og að ekki stæði til að stofna slíkan flokk enda er varla hægt að vera bæði eig­andi og rit­stjóri dag­blaðs sem vill láta taka sig alvar­lega og for­maður stjórn­mála­flokks.“ 

En nú í apríl hefur Gunnar Smári opin­ber­lega unnið að stofnun Sós­í­alista­flokks Íslands, og er að skipu­leggja stofn­fund 1. maí. 

Allt fram­ferði hans gagn­vart starfs­fólki og öllum hlut­að­eig­andi getur aldrei orðið gott vega­nesti inn í stjórn­mála­starf, að mati Inga Freys. „Þegar þetta starfs­fólk Frétta­tím­ans horfir svo upp á Gunnar Smára byrja að taka skyndi­á­kvörðun um stofnun sós­í­alista­flokks mitt í rústum blaðs­ins  sem hann lagði grunn­inn og sem starfs­fólkið hélt þar til nýlega að ætti sér fram­tíð vegna orða hans þar um, er ekki alls ekki óeðli­legt að því sárni og jafn­vel blöskri tví­skinn­ing­ur­inn. Gunnar Smári býður svo þessu sama starfs­fólki og glímir nú við fjár­hags­lega óvissu vegna ákvarð­ana hans á stofn­fund Sós­í­alista­flokks Íslands þann 1. maí í gegnum sam­skipta­mið­il­inn Face­book.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None