Ætla að byggja tvö þúsund íbúðir á ríkislóðum

Aðgerðarhópur ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum telur að jafnvægi á húsnæðismarkaði verði náð á næstu þremur árum. Þörf sé á 9.000 nýjum íbúðum

Þorsteinn Víglundsson, ráðherra félags- og húsnæðismála
Þorsteinn Víglundsson, ráðherra félags- og húsnæðismála
Auglýsing

Aðgerð­ar­hópur rík­is­stjórn­ar­innar metur svo að ­með sér­tækum aðgerðum muni jafn­vægi nást á hús­næð­is­mark­aði á árunum 2019 til­ 2020. Mark­mið aðgerð­ar­hóps­ins er að byggja um 2.000 íbúðir á næstu árum á rík­is­lóð­u­m. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi hóps­ins sem hald­inn var í hús­næð­i ­Í­búð­ar­lána­sjóðs fyrr í dag.

Metið var svo að þörf væri á allt að 9.000 nýjum íbúðum á næstu þremur árum. Vill aðgerð­ar­hóp­ur­inn bregð­ast  við þessarri þörf með fram­boðs­hvetj­andi áhrif­um, en þó telur hann mik­il­vægt að fara ekki of geyst af stað í upp­bygg­ingu, en meta þurfi jafn­óðum þörf­ina fyrir hús­næði.

Stefnt er að því að ein­falda reglu­verk og fram­kvæmd skipu­lags­mála. Reynt verði að kom­ast til móts við eig­endur stórra húsa þannig að þeir geti án veru­legrar skriffin­sku eða kostn­aðar breytt notk­un húsa sinna og leigt frá sér íbúð­ir. Líka verði unnar til­lögur um breyt­ingar á lögum um mann­virki og til­teknar breyt­ingar á bygg­ing­ar­reglu­gerð. 

Auglýsing

Einnig voru mögu­leikar viðraðir um hvernig lang­tíma­leiga á hús­næði yrði gerð fýsi­legri. Nefndar voru hug­myndir um skatta­lega hvata þess efn­is, tómt­húsa­gjald og bann við skamm­tíma­leigu á ákveðnum svæðum á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u. Fræðsla til leigu­sala og leigj­enda var líka nefnd, en gert er ráð fyrir því að aukin þekk­ing beggja aðila á skyldum þeirra muni leiða til þess að fleiri íbúðir skili sér í lang­tíma­leigu.

Aðgerð­ar­hóp­ur­inn lagði áherslu á að hús­næð­is­á­ætl­anir sveit­ar­fé­laga verði sam­ræmd­ar, en helstu nið­ur­stöður úr gerð áætl­ana sveit­ar­fé­laga verða kynntar á Hús­næð­is­þingi í októ­ber. Þar að auki verður rík­is­lóðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu komið í aukið not, en mark­mið aðgerð­ar­hóps­ins er að byggja um 2.000 íbúðir á þeim á næstu árum. Til­ ­skemmri tíma verður litið til Land­helg­is­gæslu­reits og til lengri tíma Veð­ur­stofu­reits, sjó­manna­skólareits, en einkum Keldna. 

Að lokum var vilja­yf­ir­lýs­ing ­ríkis og sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að koma rík­is­lóðum í auk­ið not und­ir­rituð af Bene­dikti Jóhann­essyni og Degi B. Egg­erts­syni. Dagur hrós­að­i ­sér­stak­lega rík­is­stjórn­inni fyrir að „ganga í málið og klára þetta”. Við því svar­aði Bene­dikt: „Engar nefnd­ir, bara efnd­ir”.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent