Dómsmálaráðherra þarf að íhuga stöðu sína ef dómsmál tapast

Varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir að Sigríður Á. Andersen verði að vega og meta það alvarlega hvort henni sé stætt að sitja áfram ef fyrirhuguð dómsmál gegn henni og ríkinu vegna vals á dómurum í Landsrétt tapist.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar.
Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra verður að vega og meta mjög alvar­lega hvort henni sé stætt að sitja áfram í emb­ætti ef nið­ur­staða dóm­stóla verður sú að hún hafi beitt ómál­efna­legum sjón­ar­miðum við til­nefn­ingu dóm­ara í Lands­rétt. Þetta segir Jón Stein­dór Valdi­mars­son, vara­for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum á Hring­braut sem skipan dóm­ara í Lands­rétt verður til umfjöll­un­ar. Þátt­ur­inn verður frum­sýndur klukkan 21:30 í kvöld. 

Dóm­nefnd hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að 15 af 33 umsækj­endum væru hæf­astir í þau 15 emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt sem í boði eru. Sig­ríður ákvað að breyta röðun list­ans með þeim hætti að fjórir sem dóm­nefnd til­nefndi hurfu af honum og fjórum öðrum var bætt við. Hún rök­studdi þessa ákvörðun sína með því að hún vildi gera dóm­ara­reynslu umsækj­enda hærra undir höfði. Stjórn­ar­and­staðan taldi að ráð­herr­ann hefði ekki rök­stutt breyt­ing­arnar sínar nægi­lega vel og vildi að ákvörðun í mál­inu yrði frestað þannig að hægt yrði að vinna það bet­ur. Var það meðal ann­ars gert vegna harðrar gagn­rýni frá lög­mönnum sem skil­uðu umsögnum inn til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar og vegna þess að rök­stuðn­ing­ur­inn gekk ekki upp ef hann miðað við stiga­gjöf dóm­nefndar fyrir dóm­ara­reynslu ein­vörð­ung­u. 



Málið var hins vegar sam­þykkt með atkvæðum stjórn­ar­liða ein­vörð­ungu. Einn þeirra umsækj­enda sem var fjar­lægður af list­an­um, Ást­ráður Har­alds­son, hefur þegar til­kynnt að hann muni stefna íslenska rík­inu og ráð­herr­anum sjálfum vegna máls­ins og telur hana hafa brotið lög. Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem einnig var fjar­lægður af list­an­um, hefur einnig sagt að hann íhugi að leita réttar síns.

Auglýsing

Jón Hösk­ulds­son hefur sömu­leiðis sagt að hann liggi undir feldi um næstu skref en Eiríkur Jóns­son, sem dóm­nefndin mat sjö­unda hæf­asta umsækj­and­ann, hefur ekk­ert viljað láta hafa eftir sér opin­ber­lega um hvort hann ætli að höfða mál eða ekki.

Á ábyrgð dóms­mála­ráð­herra

Jón Stein­dór segir að fyrir liggi að látið verði reyna á hvort emb­ætt­is­færsla Sig­ríðar hafi verið lög­leg eða ekki fyrir dóm­stól­um. Það hafi reyndar legið fyrir að lík­lega yrði reynt á það líka ef listi dóm­nefndar hefði verið lát­inn standa óbreytt­ur. Jón Stein­dór segir að dóms­mála­ráð­herra hafi þegar lýst því yfir að hún beri póli­tíska ábyrgð á skip­un­inni og hann seg­ist sann­ar­lega vona að stjórn­ar­liðar hafi staðið rétt að ákvörð­un­inni. „Ef það hefur ekki verið gert þá er það á ábyrgð dóms­mála­ráð­herra“.

Aðspurður um hvernig hún ætti að axla þá ábyrgð segir Jón Stein­dór að komi það í ljós að ráð­herr­ann hafi beitt ómál­efna­legum sjón­ar­miðum við ákvörð­un­ar­töku sína „þá held ég að hún verði að hugsa mjög alvar­lega sinn gang.“

Aðspurður um hvað felist í segir Jón Stein­dór að ráð­herr­ann verði þá „að vega og mæta hvort honum sé stætt eftir það ef hann er dæmdur fyrir að hafa staðið ómál­efna­lega að til­nefn­ing­unum.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent