Vöxtur kortaveltu ferðamanna í lágmarki

Velta á erlendum greiðslukortum jókst um 7,1% í maí síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra. Er þetta minnsta aukning milli ára síðan 2012.

Hver ferðamaður virðist eyða minna á Íslandi.
Hver ferðamaður virðist eyða minna á Íslandi.
Auglýsing

Erlend greiðslu­korta­velta jókst um 7,1% á síð­ustu 12 mán­uðum í maí sam­kvæmt Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar á Bif­röst, en aukn­ingin hefur ekki verið minni milli ára frá því að Rann­sókn­ar­setrið hóf mæl­ingar árið 2012. 

Vöxtur í kortaveltu ferðamanna hefur ekki verið lægri í mörg ár. Heimild: Rannsóknasetur verslunarinnar

Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar birti korta­veltu erlendra greiðslu­korta fyrir maí­mánuð fyrr í dag,  en hún nam 21,3 millj­örðum króna sam­an­borið við 19,9 millj­arða í maí í fyrra. Veltan hefur því auk­ist um 7,1%,  en til sam­an­burðar jókst veltan í apríl um 27,7% miðað við apríl í fyrra.

Mestur var sam­drátt­ur­inn í korta­veltu gjafa- og minja­gripa­versl­un­ar, en hann var um 18,9% milli ára. Mesta aukn­ingin var hins vegar í korta­veltu far­þega­flutn­inga, en hún jókst um 22,7% milli ára. Langstærsti lið­ur­inn innan þess flokks er far­þega­flug, en hluti erlendrar starf­semi inn­lendra flug­fé­laga er með­tal­inn í reikn­ing­un­um. 

Auglýsing
Líklegt er að veikur vöxtur erlendrar korta­veltu megi að nokkru leyti skýr­ast af styrk­ingu íslensku krón­unn­ar, en gengi hennar hækk­aði um 23% í maí síð­ast­liðnum miðað við maí í fyrra. Mest er styrk­ing krón­unnar gagn­vart pund­inu, en breskir ferða­menn hafa þurft að taka á sig mikla verð­hækkun í kjöl­far 35% geng­is­hækk­un­ar. 

Ljóst er að neyslu­mynstur ferða­manna hefur breyst og er það að öllum lík­indum vegna sterkara geng­is. Til að mynda jókst fjöldi ferða­manna í apríl síð­ast­liðnum um 62% en korta­velta þeirra jókst aðeins um 27,7% fyrir sama tíma­bil.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent