25 milljarðar í atvinnuleysissjóðum

ASÍ segir tíma til kominn að hækka atvinnuleysisbætur í takt við lágmarkslaun. Eiginfjárstaða Atvinnuleysistryggingasjóðs er sterk.

Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hafnaði því að tryggja að hámarksbætur myndu haldast í hendur við lágmarkslaun.
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hafnaði því að tryggja að hámarksbætur myndu haldast í hendur við lágmarkslaun.
Auglýsing

Eig­in­fjár­staða Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs stefnir í að verða jákvæð um 25 millj­arða króna á þessu ári. Alþýðu­sam­band Íslands, ASÍ, segir sjóð­inn þess vegna vel í stakk búinn til þess að standa undir hækkun atvinnu­leys­is­bóta. Atvinnu­leys­is­bætur sem hlut­fall af lág­marks­launum er nú 78 pró­sent og hefur hlut­fallið aldrei verið lægra.

„Al­þýðu­sam­bands Íslands mót­mælir harð­lega þeirri ákvörðun stjórn­valda að láta atvinnu­leys­is­bætur ekki fylgja þróun lægstu launa og krefst þess að atvinnu­leys­is­bætur verði hækk­aðar til sam­ræmis við lægstu laun,“ segir í frétt á vef ASÍ.

ASÍ samdi um þrepa­skiptar hækk­anir á lægstu launum í land­inu í kjara­samn­ingum árið 2015. Í árs­lok 2018 eiga lág­marks­laun þess vegna að vera 300.000 krónur á mán­uði. ASÍ seg­ist hafa farið fram á að bætur almanna­trygg­inga og atvinnu­leys­is­bætur myndu hald­ast í hendur við lág­marks­laun, en rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar hafn­aði því. Alþingi ákvað síðar að tryggja að hámarks­bætur almanna­trygg­inga vegna árs­ins 2017 myndu fylgja þróun lág­marks­launa. Slík hækkun hefur ekki verið ákveðin um atvinnu­leys­is­bæt­ur.

Auglýsing

„Í lögum er skýrt kveðið á um að atvinnu­leys­is­bætur eigi að fylgja þróun kaup­gjalds í land­in­u,“ segir í frétt ASÍ. „Ráð­herra vinnu­mark­aðs­mála og rík­is­stjórnin fer því á svig við lög og heggur þar sem síst skyldi í árferði sem hefur verið kallað lengsta góð­ær­is­skeið í manna minn­um.“

„Mið­stjórnin áréttar jafn­framt að Alþýðu­sam­bandið hefur verið þeirrar skoð­unar að aðlaga beri trygg­ing­ar­gjaldið að fjár­hags­stöðu vinnu­mark­aðstengdu sjóð­anna, þ.e. atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs, fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs og ábyrgð­ar­sjóðs launa, að því gefnu að áður en til breyt­inga á iðgjaldi atvinnu­lífs­ins kemur verði að treysta rétt­indi sjóð­fé­lag­anna. Því mun fyrr­greind lækkun bóta­réttar m.v. lægstu laun eða áform stjórn­valda um stytt­ingu bóta­tíma­bils­ins úr 30 mán­uðum í 24 ekki verða grunnur að neinni sátt.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent