Trúnaðarbresturinn var að leyna upplýsingunum

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, lýsti trúnaðarbrestinum sem olli því að ríkisstjórn Íslands er fallin í sjónvarpinu í hádeginu í dag.

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar.
Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar.
Auglýsing

Ótt­arr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, lýsti trún­að­ar­brest­inum sem olli því að rík­is­stjórn Íslands er fallin í sjón­varp­inu í hádeg­inu í dag.

Trún­að­ar­brest­ur­inn fólst í því að dóms­mála­ráð­herra upp­lýsti for­sæt­is­ráð­herra um stöðu í mjög við­kvæmu máli í júlí. Ljóst var að mælir­inn var fullur þegar upp komst að tveir mán­uðir höfðu liðið frá því að Bjarni Bene­dikts­son fékk vit­neskju um málið og þar til almenn­ingur og sam­starfs­flokkar höfðu verið upp­lýst.

Ótt­arr var í sam­tali í auka­frétta­tíma RÚV í hádeg­inu í dag þar sem hann lýsti þessu.

Björt fram­tíð sleit stjórn­ar­sam­starf­inu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Við­reisn í nótt vegna þess að faðir for­sæt­is­ráð­herra und­ir­rit­aði með­mæli með barn­a­níð­ingi um að hann fengi upp­reisn æru.

Auglýsing

„Ég stóð í þeirri trú að þetta væri eitt­hvað sem var að koma í ljós,“ sagði Ótt­arr sem fékk fyrst að vita af með­mælum föður for­sæt­is­ráð­herra á fundi með Bjarna Bene­dikts­syni og Bene­dikt Jóhann­essyni á mánu­dag.

Spurður hvort það hafi verið fljót­færni að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu segir Ótt­arr að svo hafi ekki ver­ið. Hann hafi verið í síma­sam­bandi við Bjarna þar sem hann ræddi þessi mál áður en stjórn­ar­fundur var haldin í Bjartri fram­tíð í gær­kvöldi.

Grunn­prinsipp Bjartrar fram­tíðar hafi verið brotin og þess vegna seg­ist Ótt­arr vera enn sann­færð­ari núna um að þetta hafi verið rétt ákvörðun af hálfu flokks hans en í gær­kvöldi.

Hann segir stöð­una ekki vera orðna þannig að hægt sé að segja til um hvað muni verða í fram­hald­inu. Ótt­arr vildi ekki skjóta fyrir það loku að Björt fram­tíð myndi verja minni­hluta­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar falli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent