Konur í stjórnmálum á Íslandi segja sögu sína

Undanfarna 6 daga hafa rúmlega 800 konur, sem eru og hafa verið virkar í stjórnmálum á Íslandi, rætt saman og deilt reynslusögum í lokaða Facebook hópnum „Í skugga valdsins“, um kynjað starfsumhverfi stjórnmálanna.

konur
Auglýsing

Und­an­farna 6 daga hafa rúm­lega 800 kon­ur, sem eru og hafa verið virkar í stjórn­málum á Íslandi, rætt saman og deilt reynslu­sögum í lok­aða Face­book hópnum „Í skugga­valds­ins“, um kynjað starfs­um­hverfi stjórn­mál­anna. 

 

136 sögur hafa nú verið birtar opin­ber­lega en konurnar koma úr öllum flokk­um, eru á ýmsum aldri, hafa starfað á flestum sviðum stjórn­mál­anna, á ýmsum tímum og um allt land. Segir í til­kynn­ingu frá for­svars­mönnum hóps­ins að ein­stakur sam­hljómur og sam­staða hafi ein­kennt umræður í hópn­um. Fjöl­breyttar sögur kvenn­anna dragi upp slá­andi mynd af þeim karllæga heimi sem stjórn­málin eru – sögur um kyn­bundið ofbeldi, áreitni, vald­beit­ingu og þögg­un.

Var á barn­um. For­mað­ur­inn þáver­andi kom aftan að mér, strauk rass­inn á mér. Ég brosti og gekk í burtu- hann elti mig að sal­ern­inu og spurði hvort hann ætti ekki að koma inn. Ég hló var vand­ræða­leg en sagði nei. Þetta var ekki í fyrsta né síð­asta skiptið sem þetta gerð­ist.

Í sam­eig­in­legri áskorun hóps­ins, sem var und­ir­rituð af á fimmta hund­rað stjórn­mála­kon­um, er þess kraf­ist að karlar taki ábyrgð og að stjórn­mála­flokk­arnir taki af festu á mál­inu. Þess er kraf­ist að flokk­arnir og starfs­staðir stjórn­mála­fólks  setji sér við­bragðs­reglur og lofi konum því að þær þurfi ekki að þegja og að þær muni fá stuðn­ing.

Auglýsing

Í til­kynn­ing­unni segir jafn­framt að það hafi verið ánægju­legt að fylgj­ast með þeim jákvæðum við­brögðum sem umræðan og áskorun hóps­ins hefur þegar kallað fram, en mik­ill ein­hugur ríki meðal kvenna í hópn­um, um að fylgja mál­inu fast eftir á kom­andi miss­er­um. Nú sé tími breyt­inga runn­inn upp.

Ég get ekki talið upp öll þau skipti sem mér hefur beint og óbeint verið hótað nauðgun vegna skoð­ana minna. Ég hef engan áhuga á að hafa það eft­ir, en ég hef oft lesið um alls­konar hluti sem ég hefði gott af og hvernig væri nú best að þagga niður í mér.

Til að halda umræð­unni áfram, og fagna þeim áfanga sam­stöð­unnar sem þegar hefur náð­st, munu konur úr hópnum hitt­ast víða um land, síð­degis í dag.  

Hægt er að lesa þær 136 sögur sem hafa verið birtar í hópn­um, ásamt áskor­un­inni sem á fimmta hundað stórn­mála­konur hafa und­ir­rit­að.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent