Öryrkjabandalagið lýsir vonbrigðum með fjárlagafrumvarpið

Stjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir gríðarlegum vonbrigðum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Skorað er á þingheim að standa við gefin loforð með því að gera strax mannsæmandi breytingar á framlögðu fjárlagafrumvarpi.

Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir.
Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir.
Auglýsing

Stjórn Öryrkja­banda­lags Íslands lýsir gríð­ar­legum von­brigðum með fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dótt­ur. Skorað er á þing­heim að standa við gefin lof­orð með því að gera strax mann­sæm­andi breyt­ingar á fram­lögðu fjár­laga­frum­varpi og leið­rétta kjör örorku­líf­eyr­is­þega.

Í fyrsta lagi telja þau að hækka þurfi óskertan líf­eyri almanna­trygg­inga veru­lega og í öðru lagi að afnema verði krón­u-á-­mót­i-krónu skerð­ingu sér­stakrar fram­færslu­upp­bót­ar.

Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Öryrkja­banda­lags Íslands vegna fjár­laga­frum­varps rík­is­stjórn­ar­inn­ar fyrir árið 2018 eft­ir neyð­ar­fund þann 18. des­em­ber 2017.

Auglýsing

Í grein­ar­gerð Öryrkja­banda­lags Íslands segir að kjör meg­in­þorra líf­eyr­is­þega hafi rýrnað á síð­ustu árum. Þrátt fyrir lof­orð hafi kjaragliðnun fyrri ára ekki verið leið­rétt. Þvert á móti hafi hún auk­ist. Frá 2013 hafi óskertur líf­eyrir almanna­trygg­inga hækkað mun minna en hækkun lág­marks- og með­al­launa.

Enn fremur er greint frá því að frá árinu 2010 hafi kaup­máttur launa auk­ist stöðugt ár frá ári. Hjá örorku­líf­eyr­is­þegum hafi þró­unin verið með allt öðrum hætti. Kaup­máttur heild­ar­tekna þeirra hafi rýrnað flest árin og lítið breyst síð­ustu tvö ár. Þá hafi byrði vegna hús­næð­is­kostn­að­ar, sem var mjög íþyngj­andi fyr­ir, auk­ist enn meira með gríð­ar­leg­um  hækk­un­um.

Þau benda á að fyrir alþing­is­kosn­ingar 2016 og 2017 hafi lof­orð verið gefin um að bæta kjör örorku­líf­eyr­is­þega en ekk­ert hafi bólað á efnd­um.

„Í frum­varpi til fjár­laga fyrir árið 2018 er ætl­unin að hækka greiðslur til líf­eyr­is­þega um 4,7%. Í krónu­tölum myndi það þýða að óskertur líf­eyrir almanna­trygg­inga myndi  fara úr tæpum 228 þús. kr. í rúmar 238 þús. kr. Eftir skatt yrði hækk­unin í kringum 6.700 kr. á mán­uði. Þessi upp­færsla myndi sára­litlu breyta fyrir fólk með lágar tekj­ur, sem mun áfram þurfa að velta hverri krónu fyrir sér.

Ljóst er að fram­færsla örorku­líf­eyr­is­þega gerir þeim ekki kleift að lifa mann­sæm­andi lífi og er fólki haldið í fátækt­ar­gildru. Tekju­skerð­ingar eru veru­legar þrátt fyrir lágar tekj­ur. Allar skatt­skyldar tekjur yfir eina krónu á mán­uði skerða sér­stöku fram­færslu­upp­bót­ina krónu- á- móti- krón­u,  sem örorku- og end­ur­hæf­ing­ar- líf­eyr­is­þegar með lægstu tekj­urnar eru með.

Gert er ráð fyrir að rík­is­sjóður skili 48 millj­arða króna afgangi á fjár­lög­um. Þrátt fyrir það eru engin áform sjá­an­leg hjá stjórn­völdum um að draga úr tekju­skerð­ingum eða afnema „krónu- á -móti- krónu“ skerð­ingar hjá örorku­líf­eyr­is­þeg­um.

Ekk­ert um okkur án okk­ar!“ segir í álykt­un­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent