Háskólanemar leigja með eldri borgurum

Reykjavíkurborg auglýsir eftir nemum í tilraunarverkefni sem snýst um að leigja íbúð í þjónustukjarna fyrir aldraða, starfa með þeim og stuðla að vellíðan og lífsánægju íbúa.

Elliheimili
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg hefur aug­lýst eftir háskóla­nemum sem vilja leigja íbúðir í þjón­ustu­kjörnum fyrir aldr­aða. Í aug­lýs­ingu frá vel­ferð­ar­sviði borg­ar­innar kemur fram að íbúðum fylgi starf sem gangi út á að stuðla að vellíðan og lífs­á­nægju íbúa. Nem­arnir geta til dæmis kennt íbúum að nota sam­fé­lags­miðla, haldið nám­skeið út frá áhuga­sviði sínu, svo sem á sviði fræða, menn­ing­ar, hreyf­ingar og list­sköp­unar sem og veitt íbúum ein­stak­lings­mið­aðan félags­legan stuðn­ing.



Regína Ásvalds­dóttir sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs segir í sam­tali við Kjarn­ann að um sé að ræða tvær íbúðir sem til ráð­stöf­unar eru, ann­ars vegar í Löngu­hlíð og hins vegar Norð­ur­brún.



Gert er ráð fyrir 40 tíma vinnu á mán­uði, þannig að um er að ræða hluta­starf sem greitt yrði fyrir sam­kvæmt hefð­bundnum kjara­samn­ing­um. Að sögn Regínu yrði leigan á íbúð­inni á svip­uðum nótum og hjá Félags­stofnun stúd­enta og því reiknað með að hægt verði að sækja um húsa­leigu­bætur á móti.

Auglýsing


„Mark­miðið er að blanda saman fólki og hóp­um, fá meira líf og ráða þannig inn ein­stak­linga sér­stak­lega í þetta félags­lega sam­neyt­i,“ segir Regína.



Hún segir hug­mynd­ina komna frá Hollandi þar sem sam­bæri­leg verk­efni hafa verið fram­kvæmd með góðum árangri. Regína seg­ist einnig hafa heyrt af verk­efnum í Þýska­landi þar sem nemar hafa lifað og starfað með sam­bæri­legum hætti með fötl­uð­um.



Um er að ræða til­rauna­verk­efni sem gert er ráð fyrir að standi yfir frá 1. febr­úar á þessu ári til 1. júlí 2019.



Regína segir við­brögðin hafa verið mikil og fyr­ir­séð að það verði vanda­samt að velja úr þeim sem sækja um. Borgin verður í sam­ráði við not­enda­ráð þeirra eldri borg­ara sem búa á þessum stöðum við val á nem­end­um.



„Við ætlum að nýta áhuga­svið ein­stak­ling­anna, sem geta þá miðlað því áfram, stækkað það og gefið af sér,“ segir Regína.

Tækifæri fyrir háskólanema í húsnæðisleit.

Posted by Reykja­vík­ur­borg on Tues­day, Janu­ary 16, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent