Leggja til að RÚV fari af auglýsingamarkaði - Fjölmiðlaskýrslan komin út

Nefnd um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum og afhenti skýrslu sína í dag.

Lilja Alfreðsdóttir og Björgvin Guðmundsson
Lilja Alfreðsdóttir og Björgvin Guðmundsson
Auglýsing

Nefnd um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla hefur lokið störfum og afhenti skýrslu sína í dag. Í skýrsl­unni er ítar­leg umfjöllun um stöðu fjöl­miðla bæði hér á landi og erlendis og útskýrt að rekstr­ar­erf­ið­leika megi helst rekja til breyttra for­sendna til tekju­öfl­un­ar. Nefndin gerir til­lögur um aðgerðir í sjö liðum sem gætu bætt rekstr­ar­skil­yrði fjöl­miðla. 

Þær snúa meðal ann­ars að stöðu Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði, skatta­legu umhverfi, textun og tal­setn­ingu og end­ur­greiðslu fram­leiðslu­kostn­aðar á fréttum og frétta­tengdu efni. Þá er einnig ítar­leg sam­an­tekt um opin­beran stuðn­ing við fjöl­miðla í helstu nágranna­ríkjum auk sér­á­lits tveggja nefnd­ar­manna.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu sem gefin var út í dag. 

Auglýsing

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra fagnar til­lögum og grein­ar­gerð nefnd­ar­innar og telur þær mjög gagn­legar við frek­ari und­ir­bún­ing aðgerða af hálfu stjórn­valda til að styrkja rekstr­ar­grund­völl frjálsra fjöl­miðla á Íslandi, segir í til­kynn­ing­unni. Jafn­framt segir að í skýrsl­unni sé dregið skýrt fram að áskor­anir í rekstri fjöl­miðla eru ekki ein­göngu bundnar við Ísland heldur eru einnig við­fangs­efni stjórn­valda í nágranna­ríkjum okk­ar.

„Nefndin lagði ekki sér­stakt mat á hvaða áhrif hver til­laga hefði á rekstur rík­is­sjóðs. Að mati ráð­herra er nauð­syn­legt að kostn­að­ar­mat liggi fyrir áður en ákvarð­anir eru teknar um til hvaða aðgerða skal grípa og útfærslur á þeim. Ljóst er hins vegar að hægt er að bregð­ast fljótt við til­lögu um lækkun virð­is­auka­skatts og mun ráð­herra óska eftir því að nú þegar verði athugað hvort hægt sé að sam­ræma álagn­ingu virð­is­auka­skatts á fjöl­miðla þannig að hann verði í öllum til­vikum í neðra þrepi.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur ákveðið að setja strax af stað frek­ari stefnu­mótun innan ráðu­neyt­is­ins um stöðu fjöl­miðl­unar hér á landi. Þar verða  áhrifin metin af fyr­ir­hug­uðum aðgerð­um. Leitað verður eftir sam­vinnu og sam­starfi við  hags­muna­að­ila, stjórn­mála­flokka og almenn­ing. Mark­miðið er að ná breiðri sátt um starf­semi fjöl­miðla og hugs­an­lega aðkomu rík­is­ins að lýð­ræð­is- og menn­ing­ar­hlut­verki þeirra,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Í nefnd­inni sátu Björg­vin Guð­munds­son, for­mað­ur, með­eig­andi KOM ráð­gjaf­ar, Elfa Ýr Gylfa­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefnd­ar, Hlynur Inga­son, starfs­maður í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­i, Soffía Har­alds­dótt­ir, fyrrum fram­kvæmda­stjóri mbl.is, og Svan­björn Thorodd­sen, með­eig­andi KPMG.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent