Forsætisráðherra segir niðurstöðu ASÍ ekki koma á óvart

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir niðurstöðu ASÍ um að forsendur kjarasamninga séu brostnir komi henni ekki á óvart. Forseti ASÍ segir ekki of seint fyrir stjórnvöld að bregðast við.

Katrín Gylfi
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir nið­ur­stöðu ASÍ um að for­sendur kjara­samn­inga séu brostnir komi henni ekki á óvart. Í sam­tali við Kjarn­ann sgir hún að ASÍ hafi til að mynda haft mjög skýra sýn hvað varði úrskurði kjara­ráðs, þó þeir séu ekki nefndir sér­stak­lega í yfir­lýs­ingu sam­bands­ins sem send var út fyrr í dag.

Katrín seg­ist telja að sam­tal stjórn­valda við aðila vinnu­mark­að­ar­ins á und­an­förnum vikum hafi gengið mjög vel. „Ég tel að það hafi til dæmis skilað þeim nið­ur­stöðum að það eru allir sam­mála um hvernig eigi að breyta fyr­ir­komu­lagi títt­nefnds kjara­ráðs,“ segir Katrín.

Hún nefnir einnig það að fjórtán aðild­ar­fé­lög BHM hafi nú sam­þykkt kjara­samn­inga við ríkið og von­ast til að fram­þró­unin verði þannig að hægt verði að halda sam­tal­inu áfram. „Við þurfum að setja niður áætlun um hvaða mál við viljum fara dýpra ofan í og skýra betur aðkomu stjórn­valda um að tryggja hér ekki aðeins efna­hags­legan stöð­ug­leika heldur einnig félags­leg­an.“

Auglýsing

Katrín seg­ist munu eiga fund með for­ystu­mönnum ASÍ á morgun til að ræða þessi mál. „Stjórn­völd eru að minnsta kosti öll að vilja gerð til þess að eiga gott sam­tal við aðila vinnu­mark­að­ar­ins og við förum bara yfir þessa stöðu nún­a.“

Gylfi segir ekki of seint að bregð­ast við

Í sam­tali við Kjarn­ann segir Gylfi Arn­björns­son for­seti ASÍ að málið sé enn í skoð­un. Mið­­stjórn ASÍ hefur ákveðið að boða til for­­manna­fundar aðild­­ar­­fé­laga sam­­bands­ins mið­viku­dag­inn 28. febr­­úar næst­kom­andi þar sem fjallað verður um stöð­una og ákvörðun tekin um við­brögð verka­lýðs­hreyf­­ing­­ar­inn­­ar.

Gylfi segir að ákvarð­anir liggi í höndum for­manna aðilda­fé­laga ASÍ og að ljóst sé að fund­ar­boðið sé vegna þess að mat ASÍ sé að for­sendur kjara­samn­inga séu brostn­ar. „Enn er verið að vinna í þessum málum en matið á stöð­unni er svona,“ segir hann.

Hann bætir því við að hægt sé að bregð­ast við þeim aðstæðum sem uppi eru komnar og að enn sé tími og rúm til við­bragða af hálfu stjórn­valda áður en end­an­leg ákvörðun verði tek­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent