Ríkisaðstoð á Íslandi undir meðaltali ríkja Evrópusambandsins

Samkvæmt skýrslu ESA um útgjöld til ríkisaðstoðar hefur ríkisaðstoð Íslendinga aukist en þrátt fyrir það er hlutfall ríkisaðstoðar af landsframleiðslu fremur lágt á Íslandi og talsvert lægra en meðaltal ríkja Evrópusambandsins

hugvit
Auglýsing

Rík­is­að­stoð Íslend­inga var í kringum 77 millj­ónir evra árið 2016 og er það 18 pró­sent hækkun frá árinu áður. Þetta kemur fram í nýj­ustu sam­an­burð­ar­skýrslu Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA um útgjöld til rík­is­að­stoðar í ESA EFTA-­ríkj­un­um, Íslandi, Liechten­stein og Nor­egi, sem birt var í dag. Þrátt fyrir þessa aukn­ingu er hlut­fall rík­is­að­stoðar af lands­fram­leiðslu fremur lágt á Íslandi og tals­vert lægra en með­al­tal ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins.

Rík­is­að­stoð felst í opin­berum stuðn­ingi við við­skipta­starf­semi. Hún getur verið í formi fjár­styrkja, skattaí­viln­ana, hag­stæðra lána, ábyrgða eða fjár­fest­inga sem ekki eru á mark­aðs­kjör­u­m. Rík­is­að­stoð er helst veitt í formi skattaí­viln­ana og und­an­þága frá almennu trygg­ing­ar­gjaldi allt að 70 pró­sent, jafn­framt því sem veittir eru styrk­ir.

Þrátt fyrir aukn­ingu frá árinu 2015 þá er Ísland fyrir neðan með­al­tal ríkja í Evr­ópu­sam­band­inu. Mest rík­is­að­stoð á Ísland fer í rann­sóknir og þró­un­ar- og nýsköp­un­ar­verk­efni og segir í skýrsl­unni að vel sé gert í þeim málum miðað við í öðrum Evr­ópu­lönd­um. Einnig sé aðstoð til menn­ing­ar­mála yfir með­al­tali á Ísland­i. 

Auglýsing

Nor­egur er tölu­vert fyrir ofan með­al­talið en Liechten­stein situr í botns­æt­inu með hvað minnsta rík­is­að­stoð af ríkjum Evr­ópu­land­anna. 

Samanburður ESA

Rík­is­að­stoð nauð­syn­leg til margra hluta

Til sam­an­burðar juk­ust útgjöld Íslands til rík­is­að­stoðar um 10,5 pró­sent árið áður. Aukn­ing­una árið 2015 mátti einnig helst rekja til rík­is­að­stoðar sem Ísland veitti til verk­efna á sviði rann­sókna, þró­unar og nýsköp­un­ar. Rann­sókna­sjóður Rannís og tækni­sjóður Rannís fengu við­bót­ar­fram­lög og einnig var rík­is­að­stoð til byggða­þró­unar auk­in.

ESA fram­fylgir reglum EES samn­ings­ins en er sam­tímis eina stofn­unin sem getur veitt und­an­þágur til rík­is­að­stoð­ar. Við­ur­kennt er að rík­is­að­stoð geti verið nauð­syn­leg til að standa vörð um inn­lend stefnu­mið, svo sem mark­mið um græn hag­kerfi, stuðn­ing við nýsköpun og til að tryggja að almanna­þjón­usta sé veitt. Hlut­verk ESA er að yfir­fara hvort áformuð rík­is­að­stoð sé í sam­ræmi við þær kröfur sem gera ber á Evr­ópska efna­hags­svæð­inu til að rík­is­að­stoð telj­ist heimil og sé veitt án þess að skekkja sam­keppn­is­skil­yrði. Að slíkum skil­yrðum upp­fylltum getur ESA veitt und­an­þágu. Ríkjum EFTA ber að til­kynna rík­is­að­stoð til ESA fyr­ir­fram til sam­þykkis nema ef verk­efni sem nýtur opin­bers styrks fellur undir reglu­gerð­ina um hópund­an­þág­ur.

Sam­an­burð­ar­skýrslan er birt árlega og sýnir þróun rík­is­að­stoðar í EFTA-­ríkj­unum sem og almennt á Evr­ópska efna­hags­svæð­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent