Hópur Ragnars Þórs náði ekki meirihluta í stjórn VR

Niðurstöður liggja fyrir í kosningum til stjórnar VR.

1. maí-ganga
1. maí-ganga
Auglýsing

Alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu vegna kosn­inga til stjórnar VR, sem stóð frá 6. mars til hádegis í dag er nú lok­ið. Sjö stjórn­ar­menn hafa þar af leið­andi verið kosnir í stjórn VR til tveggja ára sam­kvæmt fléttu­lista. Hóp­ur­inn sem stendur að baki Ragn­ars Þórs Ing­ólfs­son­ar, for­manns VR, náði ekki meiri­hluta. 

Þau eru:

  1. Sig­ríður Lovísa Jóns­dótt­ir 

  2. Bjarni Þór Sig­urðs­son 

  3. Dóra Magn­ús­dótt­ir 

  4. Arn­þór Sig­urðs­son 

  5. Guð­rún Björk Hall­björns­dótt­ir 

  6. Frið­rik Boði Ólafs­son 

  7. Ingi­björg Ósk Birg­is­dóttir

Þrír vara­menn voru kosnir í stjórn VR til eins árs. Eru það þau Agnes Erna Esther­ar­dótt­ir, Oddný Mar­grét Stef­áns­dóttir og Sig­urður Sig­fús­son.

Auglýsing

Sam­kvæmt frétt VR greiddu 3345 manns atkvæði. Á kjör­skrá voru alls 34.980 og var því kosn­inga­þátt­taka 9,56 pró­sent.

Atkvæða­greiðslan var raf­ræn og kosið var á milli 27 fram­bjóð­enda til sjö sæta í stjórn.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef­síðu VR hafa allir full­gildir VR-­fé­lagar atkvæð­is­rétt í kosn­ing­un­um. Á kjör­skrá eru einnig eldri félags­menn, sem eru hættir atvinnu­þátt­töku vegna ald­urs, sem greiddu eitt­hvert félags­gjald á 67. ald­ursári og höfðu greitt a.m.k. 50 mán­uði af 60 á síð­ustu fimm árum áður en þeir urðu 67 ára.

Saman til verka í VR náði ekki meiri­hluta

Hópur sem stendur að baki for­manns VR náði ekki meiri­hluta. Þeir Frið­rik Boði Ólafs­son og Arn­þór Sig­urðs­son voru þó kosnir í stjórn­ina og þær Agnes Erna Esther­ar­dóttir og Oddný Mar­grét Stef­áns­dóttir voru kosnar vara­menn. Ef ekki hefði verið um fléttu­lista að ræða þá hefðu þær Agnes Erna og Oddný Mar­grét verið kosnar í stjórn, þar sem þær lentu í fimmta og sjö­unda sæti. Í stað­inn fara Arn­þór og Frið­rik Boði í stjórn. 

Klukku­tími í að lokað verði fyrir kosn­ingar VR. Nýtið kosn­inga­rétt­inn! Við Rúnar Ein­ars­son, Agnes Erna, Oddný Mar­grét...

Posted by Frið­rik Boði Ólafs­son on Tues­day, March 13, 2018


Úrslit sam­kvæmt fjölda atkvæða:

Úrslit VR 13. mars 2018 Mynd: Skjáskot af vefsíðu VR.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent