Ísland enn í neðsta sæti meðal annarra ríkja í EES

Ísland er eina EES-ríkið innan EFTA sem hefur bætt frammistöðu sína þegar kemur að innleiðingu á EES-tilskipunum frá því í fyrra. En þrátt fyrir það er Ísland enn í neðsta sæti.

Ísland úr lofti í ágúst 2004
Auglýsing

Inn­leið­inga­halli Íslands hvað varðar EES-til­skip­anir er nú 1,8 pró­sent en var í maí 2017 2,2 pró­sent. Ísland er þó enn í neðsta sæti þegar inn­leið­ing­ar­halli EES-­ríkj­anna er tek­inn sam­an. Þetta kemur fram í frétt utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. 



Frammi­stöðu­mat Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA frá því í maí 2017 fram í nóv­em­ber sama ár var kynnt þann 6. apríl síð­ast­lið­inn. Þar er gerð grein fyrir árangri EES-­ríkj­anna innan EFTA við inn­leið­ingu EES-­gerða. Þá er lögð sér­stök áhersla á inn­leið­ingu til­skip­ana en hægt er að bera þær upp­lýs­ingar saman við inn­leið­ingu ESB-­ríkja, en það sama á ekki við um inn­leið­ingu reglu­gerða.

Í sam­skiptum Kjarn­ans við ESA kemur fram að þessar tölur sem nú birt­ast hafa ekki verið bornar saman við tölur ESB, það verði aftur á móti gert í sum­ar. Enn fremur kemur fram að Ísland hafi bætt sig, eins og áður seg­ir, sér­stak­lega þegar kemur að reglu­gerð­um.

Auglýsing

Sam­kvæmt yfir­liti ESA er Ísland eina EES-­ríkið innan EFTA sem hefur bætt frammi­stöðu sína frá því í maí 2017 þegar kemur að inn­leið­ingu á til­skip­un­um. Ísland er þó enn í neðsta sæti þegar inn­leið­ing­ar­halli EES-­ríkj­anna er tek­inn saman yfir umrætt tíma­bil.

Fimmtán til­skip­anir hafa ekki verið inn­leiddar að fullu á réttum tíma hér á landi. Í Nor­egi jókst inn­leið­ing­ar­halli frá síð­asta frammi­stöðu­mati og fór hann úr 0,2 pró­sent í 0,5 pró­sent og inn­leið­ing­ar­halli jókst lít­il­lega hjá Liechten­stein úr 1,2 pró­sent í 1,3 pró­sent. Í frétt ráðu­neyt­is­ins segir að frá árs­byrjun 2011 hafi það verið mark­mið ESB og ESA að aðild­ar­ríkin haldi inn­leið­ing­ar­hall­anum undir 0,5 pró­sent.

Upp­­­­­taka EES gerða er grund­­­völlur fyrir aðgengi Íslands og hinna EES ríkj­anna að innri mark­aði Evr­­­ópu­­­sam­­­bands­ins. Það að Ísland standi sig svona illa í inn­­­­­leið­ingum þýðir að íslenskir rík­­­is­­­borg­­­ar­­­ar, og rík­­­is­­­borg­­­arar innan alls EES svæð­is­ins, njóta ekki að fullu kosta innri mark­að­­­ar­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent