Stjórnin klofin í afstöðu til skýrslubeiðni Rósu

Þingmenn ekki á eitt sáttir hvort utanríkis- eða samgönguráðherra ætti að svara skýrslubeiðni Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur um framkvæmd vopnaflutninga. Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði gegn skýrslubeiðninni en aðrir sátu hjá.

Kristján Guy Burgess og Rósa Björk Brynjólfsdóttir
Auglýsing

Þing­fundur var hald­inn stutt­lega í dag, þrátt fyrir að vera ekki á dag­skrá, til að greiða atkvæði um skýrslu­beiðni Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dótt­ur, þing­manns Vinstri grænna, frá utan­rík­is­ráð­herra um fram­kvæmd alþjóð­legra skuld­bind­inga er varða flutn­ing á vopn­um. Ásamt Rósu standa að skýrslu­beiðn­inni nokkrir þing­menn Sam­fylk­ing­ar, Við­reisn­ar, Mið­flokks­ins og Flokki fólks­ins ásamt Píröt­um.

Þing­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna klofn­uðu í afstöðu sinni til máls­ins, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn studdi ekki skýrslu­beiðn­ina, að minnsta kosti ekki að henni yrði beint til utan­rík­is­ráð­herra og vildu heldur meina að sam­göngu­ráð­herra ætti að skila umræddri skýrslu. Þeir Óli Björn Kára­son, Páll Magn­ús­son og Vil­hjálmur Árna­son greiddu atkvæði gegn skýrslu­beiðn­inni, en aðrir þing­menn flokks­ins ýmist sátu hjá eða voru fjar­ver­andi.

Nokkur umræða varð í þing­inu á mánu­dag vegna máls­ins. Stjórn­ar­and­staðan kvart­aði yfir því að utan­rík­is­ráð­herra vildi ekki taka við skýrslu­beiðn­inni, en for­seta þings­ins hafði borist bréf frá ráð­herra þar sem hann hélt því fram að hún beind­ist að hluta til að þáttum sem væri á verk­sviði ann­ars ráð­herra.

Auglýsing

Stein­grímur J. Sig­fús­son kann­aði síðan málið sem var tekið til atkvæða í dag og taldi málið tækt til þing­legrar með­ferðar og atkvæða­greiðslu.

„Engu að síður er það svo að í fyr­ir­liggj­andi skýrslu­beiðni er óskað eftir því að fjallað verði um atriði sem falla undir mál­efna­svið utan­rík­is­ráð­herra sam­kvæmt for­seta­úr­skurði um skipt­ingu stjórn­ar­mál­efna milli ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands, nr. 84/2017. Þar er í 8. grein kveðið á um að utan­rík­is­ráð­herra fari með utan­rík­is­mál, þar á meðal samn­inga við önnur ríki og gerð þeirra. Ábyrgð á fram­kvæmd alþjóða­samn­inga getur þó eftir atvikum verið á hendi, eða að hluta til á hendi, ann­arra ráð­herra eins og kunn­ugt er. Beiðnin varðar opin­bert mál­efni og upp­fyllir að öllu leyti ákvæði þing­skapa. Hún telst því tæk til þing­legrar með­ferðar og atkvæða­greiðslu. Þá hefur þessi skoðun einnig leitt til þess að skýrslu­beið­endur hafa gert nokkrar breyt­ingar á beiðni sinni til að taka betur mið af þeirri verka­skipt­ingu sem á bak við ligg­ur. Hefur málið verið prentað upp og kemur nú þannig til atkvæða­greiðslu,“ sagði Stein­grímur í dag.

Í máli Birgis Ármanns­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar hann gerði grein fyrir hjá­setu sinni, kom fram að hann teldi að málið eigi fremur heima á borði sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra en utan­rík­is­ráð­herra. „Það hefur aldrei verið ágrein­ingur um að eðli­legt væri að kallað væri eftir upp­lýs­ingum af þessu tagi en það hefur hins vegar verið álita­mál með hvaða hætti það væri borið fram hér. Ég tel að það sé að minnsta kosti gott ef lyktir fást í þetta mál, en sit hjá við atkvæða­greiðsl­una í ljósi þeirrar afstöðu minnar að meg­in­efni og kjarni fyr­ir­spurn­ar­innar eða skýrslu­beiðn­innar lúti að mál­efnum sem heyra undir verk­svið sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og því hefði ég talið eðli­legt að málið færi í þann far­veg.“

Skýrslu­beiðnin er svohljóð­andi:

Með vísan til 54. greinar þing­skap­ar­laga er óskað eftir skrif­legri skýrslu utan­rík­is­ráð­herra, í sam­vinnu við sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra eftir því sem við á, um alþjóð­legar skuld­bind­ingar Íslands er varða leyf­is­veit­ingar eða und­an­þágur vegna vopna­flutn­inga.

Í skýrsl­unni verði dregin fram ábyrgð ráðu­neyt­is­ins, og ann­arra ráðu­neyta og stofn­ana ef við á, um veit­ingar á leyfum og und­an­þágum til vopna­flutn­inga um íslenska loft­helgi eða til íslenskra aðila sem starfa á alþjóða­vett­vangi. Í því felist að skýrt verði hvernig íslensk stjórn­völd fram­fylgja því þegar Ísland und­ir­gengst alþjóð­legar skuld­bind­ingar varð­andi vopna­við­skipti eða vopna­flutn­inga, svo sem við­skipta­bann alþjóða­stofn­ana, alþjóð­lega samn­inga og sátt­mála, álykt­anir örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna og álykt­anir Evr­ópu­ráðs­ins.

Óskað er eftir því að í skýrsl­unni verði verk­ferlar skýrðir sem og ábyrgð­ar­keðjan innan stjórn­sýsl­unn­ar, og einnig hið póli­tíska verk­lag þegar íslenska ríkið und­ir­gengst alþjóð­legar skuld­bind­ingar af þessu tagi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent