Telja Norðmenn brjóta á feðrum í fæðingarorlofi

ESA hefur höfðað mál gegn Noregi fyrir EFTA dómstólnum vegna meintra brota landsins á jafnræðisreglunni þegar kemur að töku karla á fæðingarorlofi.

Erna Solberg er forsætisráðherra Noregs.
Erna Solberg er forsætisráðherra Noregs.
Auglýsing

ESA ætlar að stefna Nor­egi fyrir EFTA dóm­stól­inn vegna brota á jafn­ræð­is­reglu þegar kemur að feðra­or­lofi. ESA, sem er eft­ir­lits­stofnun EFTA, telur norsku fæð­ing­ar­or­lofs­regl­urnar mis­muna eftir kyni og vill fá úr um það skorið hvort koma megi öðru­vísi fram við konur og karla þegar kemru að reglu­setn­ingu um fæð­ing­ar­or­lof.

Reglur um fæð­ing­ar­or­lof í Nor­egi er með þeim hætti að báðir for­eldrar eiga rétt á tíu vikna laun­uðu orlofi. Því til við­bótar gilda þar áþekkar reglur og á Íslandi, að for­eldr­arnir geti skipt á milli sín orlofi umfram þessar tíu vik­ur. Þar gilda hins vegar tak­mark­anir á orlofstöku feðra sem ekki gilda um mæð­ur. Þannig markast réttur föð­urs af stöðu móður á vinnu­mark­aði, það er að segja fað­ir­inn á aðeins rétt á umfram orlof­inu ef móð­irin er í vinnu eða námi.

Í yfir­lýs­ingu frá ESA segir að jafn­ræði sé meg­in­þáttur í lög­gjöf evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins. „Þegar norsk yfir­völd kerf­is­bundið og með ólög­mætum hætti koma öðru­vísi fram við konur og karla er það hlut­verk ESA að draga þá til ábyrgð­ar,“ er haft eftir Bente Ang­ell-Han­sen for­seta ESA.

Auglýsing

Ang­ell-Han­sen segir að evr­ópu­reglur skyldi Noreg ekki til að bjóða upp á fæð­ing­ar­or­lof. Ákveði ríki hins vegar að bjóða upp á slíkt verður það að vera gert á jafn­rétt­is­grund­velli.

Norsk yfir­völd hafa haft tölu­vert af tæki­færum til að tjá sig um málið og hafa lagt þá línu að þau telji ekki að Evr­ópu-­regl­urnar eigi við í þessu til­felli. Sé hins vegar talið að regl­urnar gildi um norska fæð­ing­ar­or­lofs fyr­ir­komu­lagið telja stjórn­völd að um sé að ræða jákvæða mis­munun sem tryggi að konur taki þátt á vinnu­mark­aði.

Nú verður það hlut­verk EFTA dóm­stóls­ins að útkljá mál­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent