Ágúst Ólafur líkir stefnu Trump við Handmaid's Tale

Þingmenn Samfylkingarinnar og Viðreisnar fordæma innflytjendastefnu Bandaríkjastjórnar sem leitt hefur til aðskilnaðar flóttamannabarna frá foreldrum sínum.

Elisabeth Moss í hlutverki Hjáfreð í Handmaid's Tale
Elisabeth Moss í hlutverki Hjáfreð í Handmaid's Tale
Auglýsing

Fjórir þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar og einn þing­maður Við­reisnar hvöttu íslensk stjórn­völd til að for­dæma stefnu Banda­ríkja­stjórnar í inn­flytj­enda­málum á Face­book í dag. Þá líkir Ágúst Ólafur Ágústs­son þró­un­ina í Banda­ríkj­unum minna á sjón­varps­þátta­röð­ina Hand­maid‘s Tale, þar sem ofbeldi er rétt­lætt með vísun í Biblíuna.

Auglýsing

Banda­ríkja­stjórn hefur sætt mik­illi gagn­rýni und­an­farna daga vegna harka­legrar stefnu þeirra í inn­flytj­enda­mál­um, en þar hafa yfir 2.000 börn efna­hags­legra flótta­manna við landa­mæri Mexíkó og Banda­ríkj­anna verið aðskilin frá for­eldrum sínum og sum þeirra geymd í búr­um. Spáð er því að rík­is­stjórnin muni geyma upp að 30.000 börn undir lok sum­ars­ins. Mbl.isfjall­aði einnig um málið fyrr í dag.

Hljóð­upp­taka af aðstæðum barna við landa­mæri Banda­ríkj­anna og Mexíkó

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, kall­aði aðgerð Banda­ríkja­stjórnar ógeðs­lega í stöðu­upp­færslu á Face­book­síðu sinni í gær. Hann kallar stefnu stjórn­valda þar í landi ómennska og segir að það þýði ekki fyrir Banda­ríkja­menn að skýla sér bak við van­stilltan og óút­reikn­an­legan for­seta. „Ís­lensk stjórn­völd eiga að for­dæma þennan við­bjóð gam­allar vina­þjóðar okk­ar,“ bætir for­mað­ur­inn við að lok­um.

Þing­menn­irnir Oddný G. Harð­ar­dóttir, Helga Vala Helga­dóttir og Ágúst Ólafur Ágústs­son taka í sama streng og  Logi, en allir þeirra hvetja íslensk stjórn­völd til for­dæm­ingar á stefn­unni. Vara­for­maður Við­reisn­ar, Þor­steinn Víglunds­son, gagn­rýndi einnig stefn­una í stöðu­upp­færslu á face­book eftir hádegi í dag og sagði Banda­ríki Don­alds Trump vera komin langt frá þeim hug­sjónum sem rit­aðar voru í sjálf­stæð­is­yf­ir­lýs­ingu sinn­i. 

Nú er nóg kom­ið, og í raun fyrir löngu. Þessi for­seti Banda­ríkj­anna stendur fyrir ótrú­legri mann­vonsku þegar hann...

Posted by Ágúst Ólafur Ágústs­son on Tues­day, June 19, 2018

Ágúst Ólafur bætir í og segir þró­un­ina sem á sér stað í Banda­ríkj­unum minna um margt á sjón­varps­þátta­röð­ina Hand­maid‘s Tale, þar sem vísun í ofbeldi er rétt­lætt með vísun í Bibl­í­una. Íslenskir ráða­menn yrðu að vakna til lífs­ins og „í raun öskra“ gegn þessum aðgerð­um.

Kjarn­inn hefur áður fjallað um Hand­maid‘s Tale, sem er þátta­röð byggð á dystópískri sögu Marg­ar­etar Atwood. Í þátt­unum er sagt frá ríki sem stjórnað er af bók­stafstrú­uðum kristum karl­mönnum og borg­ara­legt frelsi ekk­ert. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent