Gistinóttum erlenda ferðamanna fækkar í fyrsta skipti í áratug

Erlendir ferðamenn eyddu færri nóttum á skráðum gististöðum í júní í ár samanborið við í júní í fyrra. Þetta er í fyrsta skipti sem gistinóttum erlendra ferðamanna fækkar milli júnímánaða frá 2008.

Grand hótel í Reykjavík. Fjöldi hótelgistinga hefur aukist um 4%, en gistinætur aukast mest meðal íslenskra ferðamanna.
Grand hótel í Reykjavík. Fjöldi hótelgistinga hefur aukist um 4%, en gistinætur aukast mest meðal íslenskra ferðamanna.
Auglýsing

Fjöldi skráðra gistin­átta erlendra ferða­manna fækk­aði milli júní­mán­aða 2017 og 2018, í fyrsta skipti í tíu ár. Sam­hliða því fjölg­aði þó gistin­óttum Íslend­inga, en þær hafa aldrei verið fleiri. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hag­stofu sem birtar voru í dag.

Hót­elgist­ingum fjölgar um 4% 

Sam­kvæmt talna­birt­ing­unni hélst fjöldi gistin­átta nær óbreyttur milli júní­mán­aða í ár og í fyrra, en hann jókst lít­il­lega úr  1,189 millj­ónum upp í 1,195 millj­ónum nótta. Mest fjölg­aði gistin­óttum á hót­elum á tíma­bil­inu, eða um 4%. Rúmur helm­ingur allra gistin­átta voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða um 54%. 

Fram­boð gisti­rým­is, mælt í fjölda her­bergja, jókst um 5,5% á tíma­bil­inu. Þar sem fjöldi gistin­átta hélst nær óbreyttur lækk­aði því her­bergj­a­nýt­ing­in, en hún var 77,7% í ár miðað við 80,9% í fyrra. Nýt­ingin í júní var besta á Suð­ur­nesjum, eða 84,7%.

Auglýsing

Gistinætur Íslend­inga aukast mikið

Af heild­ar­fjölda gistin­átta voru Íslend­ingar með 163 þús­und þeirra, en það er 21% aukn­ing frá því á árinu áður. Þetta er mesta aukn­ing í fjölda inn­lendra gistinótta frá fjölgun erlendra ferða­manna til lands­ins árið 2010 og jafn­framt mesti fjöldi inn­lendra gistin­átta sem mælst hefur í júní­mán­uð­i. 

Á hinn bóg­inn nam fjöldi erlendra gistin­átta 835 þús­und­um, sem jafn­gildir 3% fækkun frá því á síð­asta ári. Þetta er lang­mesta fækkun sem mælst hefur milli júní­mán­aða frá því mæl­ingar Hag­stofu hófust árið 1998. Mynd af þró­un­inni má sjá hér að neð­an. 

Gistinætur erlendra ferðamanna júní. Heimild: Hagstofa

Fjöld­inn hefur ekki sveifl­ast mikið milli ára, en fækk­aði  um 1% milli áranna 2007 og 2008. Þess utan hefur hann auk­ist með nokkuð stöð­ugum hætti á síð­ustu tveimur ára­tug­um, en hraða tók á henni eftir árið 2010. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent