Guðmundur Ingi vill að hvalveiðistefna Íslendinga verði endurmetin

Umhverfis- og auðlindaráðherra telur rétt að staldrað verði við, hvalveiðistefna Íslendinga verði endurmetin og málið skoðað heildstætt út frá umhverfissjónarmiðum sem og út frá samfélagslegum og efnahagslegum sjónarmiðum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Auglýsing

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra er ekki sann­færður um að hval­veiðar hér við land séu sjálf­bær­ar. Þá hefur ráð­herra einnig efa­semdir um að hags­munir Íslend­inga af nýt­ingu hvala séu eins miklir og stundum er haldið fram.

Þetta kemur fram í svari umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Þor­gerði K. Gunn­ars­dóttur um rann­sóknir á mengun í Hval­firði. Var hann spurður hvort hann styddi að hval­veiði­stefna Íslend­inga verði end­ur­met­in.

„Ráð­herra telur rétt að staldrað verði við, hval­veiði­stefna Íslend­inga verði end­ur­metin og málið skoðað heild­stætt út frá umhverf­is­sjón­ar­miðum sem og út frá sam­fé­lags­legum og efna­hags­legum sjón­ar­mið­u­m,“ segir í svar­in­u. 

Auglýsing

Í svar­inu kemur fram að í reglu­gerð um hval­veið­ar, sem heim­ilar veiðar á hrefnu og lang­reyði, sé meðal ann­ars kveðið á um leyfi til veiða á hrefnu 2018 og 2019 og á lang­reyði árið 2018, þannig að núgild­andi reglu­gerð­ar­á­kvæði um leyfi til veiða á stór­hvölum rennur út í árs­lok 2018. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sé ekki farið að huga að frek­ari breyt­ingum á reglu­gerð­inni.

„Stefna Íslands í hval­veiði­málum hefur byggst á því að við­halda rétti til að nýta hvala­stofna við landið með sjálf­bærum hætti líkt og aðrar lif­andi auð­lindir hafs­ins,“ segir í svar­inu.

Telur miður að áhrif frá hval­skurði séu ekki vöktuð sér­stak­lega

Ráð­herra var einnig spurður hvort hann teldi ástæðu til frek­ari rann­sókna á mengun í Hval­firði sem meðal ann­ars kynni að stafa frá hval­skurði og vinnslu á lang­reyðum í Hval­stöð­inni.

Hann segir að marg­vís­leg vöktun hafi átt sér stað í Hval­firði og megi þar nefna að umhverf­is­vöktun f fram vegna iðju­ver­anna á Grund­ar­tanga sam­kvæmt áætlun sem Umhverf­is­stofnun hefur sam­þykkt. ­Skýrslu um nið­ur­stöður umhverf­is­vökt­unar iðn­að­ar­svæð­is­ins á Grund­ar­tanga vegna árs­ins 2017 og sam­an­burð við und­an­gengin ár sé einnig að finna á heima­síðu Umhverf­is­stofn­unar sem og annað ítar­efni er varðar umhverf­is­vöktun í Hval­firði.

Guð­mundur Ingi segir enn fremur að honum sé ekki kunn­ugt um rann­sóknir á mengun í Hval­firði sem tengj­ast beint hval­skurði og vinnslu á lang­reyðum í Hval­stöð­inni og telur miður að áhrifin frá þess­ari starf­semi hafi ekki verið vöktuð sér­stak­lega. 

Í svar­inu kemur fram að Hvalur hf. hafi starfs­leyfi frá heil­brigð­is­nefnd Vest­ur­lands fyrir vinnslu hvala­af­urða á Litla-Sandi í Hval­fjarð­ar­sveit. Í starfs­leyf­inu sé kveðið á um varnir gegn mengun ytra umhverfis og eft­ir­lit með starf­sem­inni.

Verði áfram­hald á hval­veiðum og þar með þess­ari starf­semi telur ráð­herra ástæðu til frek­ari rann­sókna á mengun í Hval­firði sem meðal ann­ars kynni að stafa af hval­skurði og vinnslu á lang­reyðum í Hval­stöð­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent