Júlíus Vífill: „Ég er saklaus“

Mál á hendur Júlíusi Vífli Ingvarssyni var þingfest í morgun. Hann segist saklaus af ákæru um peningaþvætti en ætlar ekki að tjá sig meira um málið að svo stöddu.

Júlíus Vífill
Auglýsing

Júl­íus Víf­ill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, neit­aði sök við þing­fest­ingu saka­máls á hendur honum sem fram fór í morg­un. Frá þessu er greint á vef mbl.is.

Júl­íus Víf­ill, sem er ákærður fyrir pen­inga­þvætti, sagði við fjöl­miðla eftir að þing­setn­ingin fór fram að hann myndi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu.

Kjarn­inn greindi frá því 17. ágúst síð­­ast­lið­inn að Júl­­íus Víf­ill hefði verið ákærður í mál­inu. Í þeirri umfjöllun kom fram að hann hefði verið einn þeirra stjórn­­­­­­­mála­­­­manna sem voru opin­beraðir í Pana­ma­skjöl­unum og greint var frá í sér­­­­­­­stökum Kast­­­­ljós­þætti sem sýndur var 3. apríl í 2016. Þar kom meðal ann­­ars fram að hann hefði í árs­­­­byrjun 2014 stofnað félagið Silwood Founda­tion á Panama. Rík áhersla var lögð á það við stofnun félags­­­­ins að nafn Júl­í­usar Víf­ils kæmi hvergi fram í tengslum við félag­ið, sam­­kvæmt umfjöll­un­inni.

Í ákærunni á hendur Júl­íusi Vífli kemur fram að hann hafi við­ur­kennt við rann­sókn máls­ins að hann hefði framið skatta­laga­brot. Í þeirri játn­ingu fólst að Júl­­íus Víf­ill við­­ur­­kenndi að hann gaf ekki upp til skatts tekjur sem honum hlotn­uð­ust árið 2005, eða fyrr, og geymdar eru á aflands­­reikn­ingi. Júl­­íus Víf­ill hefur ekki viljað upp­­lýsa um hvenær umræddra tekna var aflað og því er ekki hægt að segja með vissu hver ávinn­ingur hans af skatta­laga­brot­unum hefur ver­ið.

Auglýsing
Skatta­laga­brot fyrn­­ast hins vegar á sex árum. Það þýðir að ef við­kom­andi fremur slík, og kemur sér þannig undan að greiða lög­­bund­inn skatt eins og aðrir þegnar ríkja þurfa að gera, en nær að hylja þau í þann tíma þá kemst hann upp með það.

Öðru máli gegnir hins vegar um pen­inga­þvætti. Lögum lands­ins var breytt árið 2009 þannig að refsi­vert var að þvætta ávinn­ing af eigin afbrot­­um. Því er Júl­­íus Víf­ill ákærður fyrir pen­inga­þvætti frá þeim tíma sem lögin tóku gildi, eða frá 30. des­em­ber 2009.  

Í ákæru segir að borg­­ar­­full­­trú­inn fyrr­ver­andi hafi á árunum 2010 til 2014 „geymt á banka­­reikn­ingi sínum nr. 488380 hjá UBS banka á Ermar­sunds­eyj­unni Jersey, and­virði 131 til 146 millj­­óna króna, í banda­ríkja­döl­um, evrum og sterl­ingspund­um, sem að hluta voru ávinn­ingur refsi­verðra brota, þar sem um var að ræða tekjur sem ákærða höfðu hlotn­­ast nokkrum árum fyn, en ekki talið fram til skatts, og því ekki greitt tekju­skatt og útsvar af í sam­ræmi við ákvæði skatta­laga, ásamt vöxtum af því fé, og hafa árið 2014 râôstafað umræddum fiár­munum af fyrm­efndum banka­­reikn­ingi hjá UBS banka inn á banka­­reikn­ing nr. 0260.1020 02.01, hjá bank­­anum Julius Bär í Sviss, sem til­­heyrði vörslu­­sjóðnum Silwood Founda­tion, en rétt­hafar vörslu­­sjóðs­ins voru ákærði, eig­in­­kona hans og börn.“

Sú fjár­­hæð sem er talin vera ólög­­mætur ávinn­ingur vegna þvætt­is­ins, þ.e. þeir skattar sem Júl­­íus Víf­ill átti að greiða og vextir af því fé, er áætluð á bil­inu 49 til 57 millj­­ónir króna. Refsiramm­inn fyrir slík brot er allt að sex ára fang­elsi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent