Kveður við nýjan tón hjá ríkisstjórninni í kjaramálum: „Þessari vitleysu verður að ljúka“

Félagsmálaráðherra sagði í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í gær að tillögu um bónusgreiðslur yrði að draga til baka. Allir þyrftu að leggja sitt að mörkum í kjarasamningum, ekki bara sumir.

alingi-haust-2013_14405659215_o.jpg
Auglýsing

Félags­mála­ráð­herra gerði kjara­málin að umfjöll­un­ar­efni í ræðu sinni í umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra í þing­inu í gær. Ásmundur Einar Daða­son, félags­mála­ráð­herra sem er einnig ráð­herra vinnu­mark­að­ar­ins, tal­aði sér­stak­lega um N1 og launa­greiðslur til for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins sem sé í meiri­hluta­eigu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna. Sagði hann nú ber­ast fréttir af því að fyr­ir­tækið ætli að taka upp kaupauka­kerfi eða bón­us­greiðslur á nýjan leik. „Ég segi við líf­eyr­is­sjóð­ina og aðra sem eiga í þessu fyr­ir­tæki að þess­ari vit­leysu verður að ljúka. Þessa til­lögu verður að draga til bak­a.“

Ás­mundur kom inn á launa­hækk­anir á einka­mark­aði hjá stórum fyr­ir­tækjum og bar þau saman við lægstu laun. „Sem dæmi má nefna hækk­uðu laun þriggja lægst laun­uðu hópanna um 8 til 9 pró­sent milli áranna 2015 og 2016. Í krónum talið eru þetta hækk­anir að með­al­tali undir 40 þús­und krónum á mán­uði. Sú hækkun er hins vegar 25 sinnum lægri en til dæmis hækkun launa for­stjóra N1 á milli áranna 2015 og 2016, en þá hækk­aði for­stjór­inn um rúm­lega 1 milljón króna á mán­uð­i.“

Ásmundur sagði alla hafa takið á sig byrðar til að rífa upp efna­hags­lífið eftir fall bank­anna. Fyrir hrunið hafi toppar sam­fé­lags­ins verið komnir á him­inhá laun með risa­bón­usum, sumir á árs­launum hærri en það sem verka­maður gæti látið sig dreyma um á heilli starfsævi. „Nú hafa margir á til­finn­ing­unni að í gangi sé launa­skrið hjá efstu lögum sam­fé­lags­ins og að skilja eigi eftir bæði milli­stétt­ina og lægri tekju­hópa. Já, það er þyngra en tárum taki að til sé fólk og börn í þessu landi sem geta ekki stundað tóm­stund­ir, geti ekki haldið ferm­ing­ar­veislur og fleira sökum lágra tekna for­eldra sinna. Þegar slíkar sviðs­myndir finn­ast enn er verk að vinna.“

Auglýsing

Ráð­herr­ann sagði stjórn­völd hafa komið að kjara­samn­ingum með ein­hverjum aðgerðum til að liða fyrir að samn­ingar náist. Rík­is­stjórnin hafi lagt ríka áherslu á gott sam­starf við aðila vinnu­mark­að­ar­ins. „Stöð­ug­leiki efna­hags­lífs­ins og auk­inn jöfn­uður í sam­fé­lag­inu getur farið saman í kom­andi kjara­samn­ingum en til þess að svo geti orðið verða allir að leggja eitt­hvað af mörk­um, ekki bara sum­ir.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent