Elísabet tekur ekki við landsliðinu - Æskilegt en ekki skilyrði að þjálfarinn búi á Íslandi

Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari Kristianstad í Svíþjóð mun ekki taka við þjálfun kvennalandsliðsins í knattspyrnu. Formaður KSÍ segir búsetu á Íslandi ekki hafa verið skilyrði, aðeins æskilega.

Elísabet Gunnarsdóttir Mynd: Wiki commons
Auglýsing

Elísa­bet Gunn­ars­dóttir þjálf­ari Krist­i­an­stad í Sví­þjóð mun ekki taka við þjálfun kvenna­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu. Í sam­tali við RÚV sagði Elísa­bet að hún hafi átt sam­tal við KSÍ þar sem fram hefði komið að æski­legt væri að þjálf­ari íslenska lands­liðs­ins væri búsettur hér á landi.

Elísa­bet hefur búið lengi í Sví­þjóð og frétt RÚV kemur fram að séu það kröfur KSÍ að þjálf­ar­inn búi á Íslandi verði hún ekki þjálf­ari lands­liðs­ins. Síðan hafi önnur atriði komið til sem hún hafi þurft að vega og meta en nið­ur­staðan hafi verið að gefa mögu­leik­ann frá sér.

Í sam­tali við Kjarn­ann segir Guðni Bergs­son for­maður KSÍ að krafan um búsetu þjálf­ar­ans hafi ekki verið gert að skil­yrði. „Við ræddum um fót­bolt­ann almennt og kvenna­bolt­ann auð­vitað sér­stak­lega og bara út af hennar aðstæðum þá vildi hún ekki fara í þessar við­ræður og taka þær lengra,“ segir Guðni.

Auglýsing

Búseta á Íslandi hafi ekki verið ákvörð­un­ar­at­riði í þessu heldur aðeins eitt af mörg­um. Guðni vill hins vegar ekki svara því hvaða ástæður lágu að baki því að ekki var hægt að ganga til samn­inga við Elísa­betu. Hún verði að svara því sjálf.

„Mun­ur­inn á kvenna­bolt­anum og karla­bolt­anum er nátt­úru­lega sá að flestir liðs­manna kvenna­liðs­ins spila hér heima á meðan í síð­asta hópi ein­ungis einn leik­maður karla­liðs­ins sem spilar í Pepsi-­deild­inn­i,“ segir Guðni en þjálf­ari íslenska karla lands­liðs­ins, Erik Ham­rén, er einmitt búsettur í Sví­þjóð. Hið sama átti við um fyrr­ver­andi þjálf­ara liðs­ins Lars Lag­er­back. Eðli­legt hefur þótt að ferð­ast mikil milli landa í til­vikum þess­ara þjálf­ara.

Guðni ítrekar hins vegar að búseta á Íslandi hafi aðeins verið æski­leg, ekki skil­yrði. „Í raun og veru sner­ist þetta bara um að fá að heyra í henni og fá hana til við­ræðna um mögu­legt starf. Það var nálg­unin í þessu. Við erum að tala við fleiri og fara yfir sviðið í þessu.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent