Viðurkennir að ýmislegt var gagnrýnisvert við hátíðarfundinn

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, segir að hann telji enn að minnast eigi hátíðarstunda í sögu Íslands. Hann viðurkennir þó að ýmislegt sé gagnrýnisvert við fundinn sem haldinn var á Þingvöllum í sumar.

Auglýsing

„Ég fús­lega við­ur­kenni að það er ýmis­legt sem er gagn­rýn­is­vert í þessu, og ég kveinka mér ekk­ert undan því,“ segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, um hátíð­ar­fund­inn sem hald­inn var á Þing­völlum þann 18. júlí síð­ast­lið­inn. Þetta kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, við hann í þætt­inum 21 á Hring­braut á fimmtu­dags­kvöld.

Há­tið­ar­fund­ur­inn hefur verið mjög gagn­rýndur vegna ýmissa þátta. Fyrst vegna þess að Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins, ávarp­aði fund­inn. Kjærs­gaard, og flokkur hennar Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, eru afar umdeild, sér­stak­lega vegna afstöðu þeirra gagn­vart fjöl­menn­ingu, inn­flytj­endum og íslam. Vera hennar á fund­inum varð til þess að þing­flokkur Pírata mætti ekki á hann og Helga Vala Helga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar, gekk út af honum á meðan að Kjærs­gaard tal­aði. Þá báru margir þing­menn barm­merki þar sem útlend­inga­andúð var hafn­að.

Afar fáir lands­menn gerðu sér ferð á Þing­velli til að vera við­staddir fund­inn, og mun færri en búist hafi verið við. 

Auglýsing
Þegar kostn­aður við fund­ar­höldin var svo gerður upp kom í ljós að hann nam 87 millj­ónum króna, en upp­haf­lega hafði kostn­að­ar­á­ætlun hljóðað upp á 45 millj­ónir króna. Á meðal þess sem var harð­lega gagn­rýnt í end­an­legum kostn­aði var að lýs­ing fund­ar­ins hafi kostað 22 millj­ónir króna.

Aðspurður um hvort ofan­greint, og sú gagn­rýni sem hefur verið sett fram vegna þess, geri það að verkum að for­svar­an­legt sé að halda svona hátíð­ar­fund segir Stein­grímur að hann telji enn svo vera. „Við eigum að minn­ast hátíð­ar­stunda í okkar sögu. Mér finnst gott að Alþingi haldi tengslum sínum við Þing­völl, þetta er okkar forni og helgi þing­stað­ur. Ég vil, ef eitt­hvað er, að Alþingi geri meira í því. Ég hef til dæmis varpað fram hug­myndum um að kannski ættum við að setja hvert nýtt þing að loknum kosn­ingum undir berum himni á Þing­völl­u­m.“

Í þætt­inum ræðir Stein­grímur einnig meðal ann­ars ýmsar aðgerðir sem ráð­ist hefur verið í til að styrkja starf­semi Alþingis og traust­krísu stjórn­mál­anna. Hægt er að horfa á við­talið í heild hér að neð­an. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent