Nefndarmenn starfskjaranefndar Orkuveitunnar fá 25 þúsund krónur á tímann

Starfskjaranefnd Orkuveitu Reykjavíkur ákvarðaði í síðasta mánuði að hækka tímakaup sitt í 25 þúsund krónur á klukkutímann. Formaður nefndarinnar fær 37.500 krónur fyrir hvern unninn klukkutíma. Starfskjaranefnd ákvarðar meðal annars laun forstjóra OR.

Orkuveita Reykjavíkur
Orkuveita Reykjavíkur
Auglýsing

Stjórn Orku­veitu Reykja­víkur sam­þykkti í des­em­ber á síð­asta ári að laun nefnd­ar­manna starfs­kjara­nefndar fyr­ir­tæk­is­ins verði 25 þús­und krónur fyrir hvern unn­inn klukku­tíma. For­maður nefnd­ar­innar fær sama tíma­kaup auk 50 pró­sent álags eða 37.500 krónur á tím­ann. Starfs­kjara­nefndin leggur til hver laun nefnd­ar­manna skulu vera. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þriggja manna nefnd sem fjallar um kjör for­stjóra

Sigríður Rut Júlíusdóttir, formaður starfskjaranefndar.Nefndin er þriggja manna nefnd sem hefur það verk­efni að fjalla um kjör for­stjóra og inn­ri end­ur­skoð­anda Orku­veit­unn­ar. Sig­ríður Rut Júl­í­us­dótt­ir, for­maður starfs­kjara­nefndar OR, lagði fram og kynnti til­lögu nefnd­ar­innar um laun nefnd­ar­manna á stjórn­ar­fundi Orku­veit­unnar í des­em­ber. ­Geir Guð­jóns­son, vara­maður í stjórn OR, lagði á fund­inum fram breyt­ing­ar­til­lögu um að ­lækka launin í 10 þús­und krónur fyrir hverja unna klukku­stund. Sú til­laga var felld og til­laga nefnd­ar­innar um eigin laun upp á 25 þús­und krónur á tím­ann var sam­þykkt.

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins segir að ­Sjálf­stæð­is­menn í stjórn Orku­veit­unnar hafa löngum deilt á starfs­kjara­nefnd og sagt hana óþarfa pen­inga­só­un. Kjartan Magn­ús­son, sem setið hefur í starfs­kjara­nefnd, hefur ítrekað bent á það að stjórn­ar­for­maður og stjórn Orku­veit­unnar geti vel séð um þetta verkefni. 
Auglýsing

Orku­veita Reykja­víkur er sam­eign­ar­fyr­ir­tæki í eigu þriggja sveit­ar­fé­laga, Reykja­vík­ur­borg á 94 pró­sent, Akra­nes­kaup­staður 5 pró­sent og Borg­ar­byggð 1 pró­sent. Dótt­ur­fé­lög OR eru Veit­ur, Orka nátt­úr­unnar og Gagna­veita Reykja­vík­ur­. Orku­veitan starfar á grund­velli laga nr. 139/2001 um stofnun sam­eign­ar­fyr­ir­tækis um Orku­veitu Reykja­vík­ur. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent