Forsætisráðuneytið og Samtökin '78, hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi, hafa gert með sér samning um að samtökin sinni sértækri fræðslu, þjónustu og ráðgjöf er varða málefni hinsegin fólks. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og María Helga Guðmundsdóttir, formaður Samtakanna '78, undirrituðu samning þessa efnis í Stjórnarráðinu.
Þetta kemur fram í frétt forsætisráðuneytisins.
Samningurinn gildir frá 15. febrúar á þessu ári til 15. febrúar á því næsta og greiðir forsætisráðuneytið Samtökunum '78 fimmtán milljónir króna til að sinna þeim verkþáttum sem samningurinn tekur til.
Samningnum er ætlað að stuðla að hinseginvænu samfélagi og auknum sýnileika hinsegin fólks. Skal þjónusta þessi beinast annars vegar að hinsegin einstaklingum og aðstandendum þeirra og hins vegar að fagfólki í almannaþjónustu svo sem í opinberri stjórnsýslu og skólum.
Auk þess að veita þjónustu og annast fræðslu skulu samtökin samkvæmt samningum standa að:
- Árlegum samráðsfundum með kennurum sem kenna kynja-, jafnréttis-, og hinseginfræði á öllum skólastigum í því augnamiði að auka þekkingu og færni kennara á jafnréttismálum og málefnum hinsegin fólks.
- Árlegum samráðsfundum með kjörnum fulltrúum og sérfræðingum sem vinna að opinberri stefnumótun á sviði jafnréttismála um málefni hinsegin fólks.
- Alþjóðasamstarfi sem hafi að markmiði að byggja upp tengsl við systursamtök á hinum Norðurlöndunum og á alþjóðavettvangi og miðla af reynslu annarra hér á landi.
- Þátttöku í árlegu kynjaþingi frjálsra félagasamtaka á sviði jafnréttismála og tryggja að raddir hinsegin fólks heyrist á þinginu.