Þrír handteknir við Alþingishúsið

Þrír voru handteknir við Alþingishúsið í dag eftir að lögreglan var kölluð þangað vegna mótmæla hælisleitenda. Samtökin Refugees in Iceland segja að um friðsöm mótmæli hafi verið að ræða og að þau hafi ekki ætlað að hindra aðgengi að Alþingi.

Hælisleitendur mótmæla fyrir framan Alþingishúsið
Hælisleitendur mótmæla fyrir framan Alþingishúsið
Auglýsing

Þrír voru hand­teknir við Alþing­is­húsið á öðrum tím­anum í dag eftir að lög­reglan var kölluð þangað vegna hóps af fólki sem hindr­aði aðgengi að hús­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni sem send var á fjöl­miðla í dag.

Í henni segir að þre­menn­ing­arnir hafi ekki hlítt ítrek­uðum fyr­ir­mælum lög­reglu um að láta af þess­ari hátt­semi og hafi þeir verið hand­teknir eins og áður sagði.

Sam­tökin Refu­gees in Iceland fjöll­uðu um hand­tök­una á Face­book-­síðu sinni í dag en þar kemur fram að um frið­söm mót­mæli hafi verið að ræða. „Við stóðum ekki fyrir framan inn­gang Alþing­is­húss­ins til þess að hindra aðgang fólk að fara inn. Heldur til að fá það til að taka eftir okk­ur,“ segir í færsl­unni.

Auglýsing

Enn fremur kemur fram hjá Refu­gees in Iceland að lög­reglan hafi mætt á stað­inn, ýtt þeim til hliðar og hand­tekið þrjár mann­eskj­ur. „Núna erum við á leið­inni á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu. Vin­sam­leg­ast komið með okk­ur.“

Now three mem­bers of our peaceful prot­est in front of Alþingi have been arre­sted. We stood in front of the entrances to...

Posted by Refu­gees in Iceland on Tues­day, March 19, 2019


Helgi Bern­ód­­us­­son, skrif­­stofu­­stjóri Alþing­is, segir í sam­tali við mbl.is að fólkið hafi raðað sér upp fyr­ir fram­an þing­­húsið við aðal­­inn­­gang­inn og einnig bak­dyra­­meg­in. Söm­u­­leiðis hafi það raðað sér upp fyr­ir fram­an inn­­­gang­inn á bíla­­stæð­ið. Ein­hverj­ir þing­­menn hafi getað lagt á bíla­­stæð­inu en aðrir hafi þurft að leggja ann­­ars stað­ar. Upp­á­­tækið hafi þó ekki truflað störf þings­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent