Fleiri grunnskólakennarar án réttinda

Á sama tíma og grunnskólanemendur hafa aldrei verið fleiri hefur kennurum án kennsluréttinda fjölgað.

klébergsskóli
Auglýsing

Kenn­urum án kennslu­rétt­inda hefur fjölgað á hverju ári frá 2012 en fram að því hafði þeim fækkað frá 2008. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hag­stof­unnar. Sam­kvæmt þeim var átt­undi hver kenn­ari við grunn­skóla án kennslu­rétt­inda haustið 2018 og fjölg­aði um 214 á milli ára.

Grunn­skóla­nem­endur hafa aftur á móti aldrei verið fleiri, en frá árinu 1998 hefur þeim fjölgað um 8,2 pró­sent. Starfs­mönnum hefur fjölgað um 39,1 pró­sent á síð­ustu tutt­ugu árum. Fjölgun starfs­manna sem starfa við stuðn­ing hefur verið tölu­verð, meðal ann­ars hefur fjöldi skóla­sál­fræð­inga og náms­ráð­gjafa tvö­fald­ast og fjöldi stuðn­ings- og upp­eld­is­full­trúum fjölgað úr 247 í 1.161.



Karl­mönnum fækkar

Kven­kyns skóla­stjórum hefur fjölgað jafnt og þétt frá árinu 1998 og eru nú 123. Á sama tíma hefur karl­kyns skóla­stjórum fækkað um 77 og voru 48 haustið 2018. Alls starfa 169 grunn­skólar á land­inu.

Auglýsing

Á sama tíma og konum sem starfa við kennslu fjölg­aði um 1.300 hefur karl­mönnum í grein­inni fækkað um 200. Alls starfa nú 900 karl­menn við kennslu í grunn­skól­um.



Aldrei fleiri með erlent móð­ur­mál

Nem­endur með erlent móð­ur­mál hafa aldrei verið fleiri. Þeim fjölg­aði um 10,6 pró­sent og voru tæp­lega 4.900 haustið 2018. Hag­stofan tekur þó fram að ein­hverjir þess­ara nem­enda séu tví­tyngdir og hafi einnig íslensku sem móð­ur­mál. Flestir þeirra sem hafa erlent móð­ur­mál tala pólsku, og þá hafa 350 fil­ippseysk mál og á þriðja hund­rað ensku, tælensku eða lit­há­ensku sem móð­ur­mál.

Nem­endum með erlent rík­is­fang hefur einnig fjölgað jafnt og þétt og eru 2.500 tals­ins. Sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar var fjöldi barna á grunn­skóla­aldri með erlendan bak­grunn rúm­lega 3.300 árið 2017.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent