Kostnaður vegna þingmanna lækkar

Kostnaður Alþingis vegna þingmanna hefur lækkað á milli ára. Endurskoðaðar reglur og lægri launakostnaður eru helstu ástæðurnar.

Alþingi - Janúar 2018
Auglýsing

Kostn­aður vegna þing­manna fyrstu tvo mán­uði árs­ins er tíu millj­ónum króna lægri en fyrstu tvo mán­uði síð­asta árs. Séu bið­laun sem greidd voru fyrstu mán­uði síð­asta árs tekin með í reikn­ing­inn lækk­aði kostn­að­ur­inn um 43 millj­ón­ir. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum af vef Alþingis virð­ist lækk­un­in, að teknu til­liti til bið­launa fyrr­ver­andi þing­manna, að stærstum hluta koma til vegna lækk­unar á kostn­aði við ferða­lög og lægri launa­kostn­að­ar.

Minni ferða­kostn­aður

Í byrjun sein­asta árs voru end­ur­greiðslur til þing­manna vegna akst­urs á eigin bíl í fyrsta skipti opin­ber­að­ar. Þá komst upp um mik­inn kostnað sem þing­menn höfðu fengið end­ur­greiddan vegna akst­urs á eigin bif­reið. Í kjöl­farið voru end­ur­greiðsl­urnar tak­mark­aðar við fimmtán þús­und kíló­metra akstur á ári og ákvæði um hvenær þing­menn skuli not­ast við bíla­leigu­bíla gerð skýr­ari.

Auglýsing

Þetta hefur skilað sér í minni kostn­aði fyrir Alþingi enda voru end­ur­greiðslur vegna akst­urs 1,7 millj­ónum króna lægri á fyrstu tveimur mán­uðum þessa árs en þær voru fyrstu tvo mán­uði 2018. Kjarn­inn hefur áður bent á að end­ur­greiðsl­urnar hafi lækkað eftir að farið var að birta upp­lýs­ingar um þær.

Þá greiddi Alþingi minna í ferða­kostnað utan­lands fyrir þing­menn. Þegar horft er til flokk­anna „gisti- og fæð­is­kostn­að­ar, flug­ferðir utan­lands, dag­pen­inga og ann­ars ferða­kostn­aðar utan­lands” nemur lækk­unin sam­tals 2,4 millj­ónum á milli ára.

56 millj­ónir í bið­laun

Þing­menn sem falla út af þingi eiga rétt á bið­launum í þrjá til sex mán­uði eftir kosn­ing­ar, eftir því hvað þeir hafa setið lengi á þingi. Í kosn­ing­unum 2017 féllu 19 þing­menn út af þingi og fengu þeir sem lengst höfðu setið á þingi greidd bið­laun fram í apríl 2018. Alls kost­uðu bið­laun þing­manna Alþingi rúm­lega 56 millj­ónir árið 2018, og lækk­uðu um 82 millj­ónir á milli ára.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent