Besta vörnin gegn falsfréttum að þjálfa gagnrýna hugsun

Formaður starfshóps um fjórðu iðnbyltinguna segir nauðsynlegt að huga að sjálfræði borgaranna samhliða tæknibreytingum. Gagnrýnin hugsun verði sífellt mikilvægari færni, huga þurfi að persónuvernd og jöfnuði þegar tæknin leiðir af sér mikla hagræðingu.

Huginn Freyr Þorsteinsson
Auglýsing

Hvernig tök­umst við á við fals­fréttir sam­fé­lags­miðla? Við getum auð­vitað sett alls­konar regl­ur. En besta vörnin er auð­vitað sú að fólk sé þjálfað í gagn­rýnni hugs­un. Að það séu kennt ákveðin vinnu­brögð við það að meta upp­lýs­ing­ar.“

Þetta sagði Dr. Hug­inn Freyr Þor­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Aton og for­maður starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra sem vann skýrslu um Ísland og fjórðu iðn­bylt­ing­una, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans. Við­talið birt­ist í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr því hér að neð­an.

Hug­inn segir það mjög mik­il­vægt að huga að stöðu borg­ar­anna gagn­vart tækn­inni. Það sé til að mynda hægt að gera með því að breyta áherslum í mennta­mál­um. „Þá eigum við auð­vitað að horfa á hvernig við und­ir­búum okkar fólk best til að takast á við áskor­anir í atvinnu­líf­inu og hvernig fólk getur menntað sig best til að vera með þá færni sem þarf fyrir fjórðu iðn­bylt­ing­una.“

Hann nefnir síðan útbreiðslu fals­frétta sem dæmi um eitt­hvað sem hægt sé að kenna við­brögð við, enda veki hún upp allskyns vanda­mál. Gott dæmi sé vandi sem teng­ist rangri upp­lýs­inga­dreif­ingu um bólu­setn­ing­ar.

Auglýsing
Aðrar lyk­il­spurn­ingar sem snúa að sjálf­ræði borg­ar­anna og hvernig það sé eflt sam­hliða miklum tækni­breyt­ingum snúi til að mynda að per­sónu­vernd og hvernig eigi að vernda einka­líf fólks á tímum þegar öll þessi söfnun upp­lýs­inga er að eiga sér stað i gegnum tækni­fram­far­ir. „Líka varð­andi dreif­ingu gæða ef það verður mikil hag­ræð­ing í ein­hverjum atvinnu­geirum og mikil auð­söfnun á ein­hverjum stöð­um, hvernig tryggjum við það að hún dreif­ist með sann­gjörnum hætti út í sam­fé­lag­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent