Breyttar reglur gætu hækkað leigu á félagslegu húsnæði

Í umsögn fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar um tillögur að breytingum á reglum um félagslegt leiguhúsnæði segir að Félagsbústaðir gætu þurft að hækka húsaleigu. Áhrifin séu þó ekki ljós.

img_5063_raw_0710130620_10191554925_o.jpg
Auglýsing



Breyt­ingar á reglum um félags­legt leigu­hús­næði í Reykja­vík munu að óbreyttu leiða til þess að hækka þurfi leigu. Þetta kemur fram í umsögn fjár­mála­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar um regl­urn­ar, sem sam­þykktar voru á borg­ar­ráðs­fundi 2. maí síð­ast­lið­inn. 

Hækk­unin komi til vegna þess að breyttar úthlut­un­ar­reglur geti leitt af sér að fleiri eigi rétt á félags­legu leigu­hús­næði.

Auglýsing

Breyt­ing­arnar fel­ast í því að teknar eru upp heild­stæðar reglur um úthlutun á félags­legu hús­næði á vegum Reykja­vík­ur­borg­ar. Þær munu leysa af hólmi reglur um félags­legt leigu­hús­næði, þjón­ustu­í­búðir aldr­aðra og verk­lag um úthlutun á sér­tæku hús­næði fyrir fatlað fólk og heim­il­is­lausa sem hafa miklar þjón­ustu­þarf­ir.

Í bókun meiri­hlut­ans á borg­ar­ráðs­fundi segir að með þessum reglum séu tekju- og eign­ar­við­mið rýmkuð og félags­legt mat skýrt, sem geri íbúum kleift að meta betur stöðu sína.

Fjár­mála­skrif­stofan gerir ráð fyrir að mögu­legur kostn­að­ar­auki vegna ein­stak­linga sem kunna að bæt­ast við á biðlista falli til hjá Félags­bú­stöð­um. Reikna megi með að kostn­aður við öflun hús­næðis geti numið allt að 4,3 millj­örðum króna og kostn­aður vegna þeirra 150 millj­ón­um. Þetta segir fjár­mála­skrif­stofan að muni að óbreyttu skila sér í því að nauð­syn­legt verði fyrir Félags­bú­staði að hækka húsa­leigu.

Fjár­mála­skrif­stofan segir þó að þarna sé um mat á hámarks­á­hrifum að ræða og að lík­ast til muni áhrifin verða mun minni.

Í umræðum um breyt­ing­ar­til­lög­urnar í vel­ferð­ar­ráði lagði full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks fram bókun þar sem stefnu­leysi borg­ar­innar í mála­flokknum er gagn­rýnt. Í bók­un­inni segir að fjölgun íbúða í félags­lega kerf­inu hafi ekki skilað sér í fækkun á biðlistum heldur hafi biðlistar lengst ár frá ári. Hann segir að marka þurfi stefnu þar sem fólki er hjálpað við að kom­ast út úr félags­lega kerf­inu, hann segir að eign­ar- og tekju­mörk núver­andi kerfis vera fátækt­ar­gildru sem hafi letj­andi áhrif á fólk.

Full­trúar Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Vinstri grænna neit­uðu því að umsækj­endum færi fjölg­andi, þeim hafi fækkað um rúm sjö pró­sent á milli ára og að það hafi gerst með­fram fjölg­unum á íbúðum í félags­lega kerf­inu. Einnig hafi verið farið í sér­stakt átak til að koma til móts við barna­fjöl­skyldur og keyptar hafi verið 49 íbúðir fyrir það verk­efni. Full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins lét bóka að almenn skil­yrði um að umsækj­andi hafi þurft að eiga lög­heim­ili í Reykja­vík síð­ustu tólf mán­uði geri það að verkum að töl­urnar end­ur­spegli ekki þann fjölda Reyk­vík­inga sem séu í raun­veru­legri þörf fyrir félags­legt leigu­hús­næði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent