Alls ekki kvöð að sinna málaflokki hælisleitenda

Reykjanesbær er eitt þriggja sveitarfélaga sem er með þjónustusaming við umsækjendur um alþjóðlega vernd og segir formaður velferðarráðs bæjarins að allir þurfi að huga betur að sálgæslu og þátttöku þessara einstaklinga í samfélaginu.

Reykjanesbær
Reykjanesbær
Auglýsing

Reykja­nes­bær hefur boð­ist til að kynna reynslu sína af þón­ustu­samn­ingum við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd fyrir öðrum sveit­ar­fé­lögum en þeir hafa gef­ist vel í bæn­um. Útlend­inga­stofnun hyggst ræða það við dóms­mála­ráðu­neytið hvernig best megi standa að slíkri kynn­ingu fyrir önnur sveit­ar­fé­lög en ekki er komin tíma­setn­ing á hana.

Út­lend­inga­stofnun sendi bréf um miðjan mars síð­ast­lið­inn til allra sveit­ar­fé­laga á land­inu til að kanna áhuga þeirra á að gera samn­ing við stofn­un­ina um þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, sam­bæri­lega við þá sem stofn­unin hefur nú þegar gert við Reykja­vík­ur­borg, Reykja­nesbæ og Hafn­ar­fjarð­ar­bæ.

Í svari Útlend­inga­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarn­ans kemur fram að ekk­ert þeirra sveit­ar­fé­laga sem svarað hefur erind­inu taldi sig að svo stöddu í stakk búið til að bæt­ast í hóp sveit­ar­fé­laga sem veita umsækj­endum um vernd þjón­ustu en mörg þeirra hafi þó lýst yfir jákvæðri afstöðu til verk­efn­is­ins.

Auglýsing

Ólíkir ein­stak­lingar með ólíkar þarfir

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Mynd: AðsendHall­dóra Fríða Þor­valds­dótt­ir, for­maður vel­ferð­ar­ráðs Reykja­nes­bæj­ar, segir í sam­tali við Kjarn­ann að mik­il­vægt sé að sveit­ar­fé­lög geri þessa þjón­ustu­samn­inga við Útlend­inga­stofn­un. „Það er fyrst og fremst til að tryggja að hægt sé að mæta ein­stak­ling­unum í nærum­hverfi þeirra og það gerum við með því að hafa dreif­ing­una betri. Þetta eru ólíkir ein­stak­lingar með ólíkar þarf­ir.“

Hún telur að sveit­ar­fé­lögin verði að sjá ávinn­ing þess að gera slíka samn­inga en að hennar sögn er hann mik­ill bæði fyrir umsækj­end­urna sjálfa og sam­fé­lag­ið. „Þessir ein­stak­lingar hafa nefni­lega gefið okkur mik­ið.“

Mik­ill sam­fé­lags­legur ávinn­ingur

Hall­dóra veltir því fyrir sér hvort heppi­legt sé að tugir, jafn­vel hund­ruð, manna séu í einu eða tveimur hús­um, eins og raunin er í Reykja­nesbæ á vegum Útlend­inga­stofn­un­ar. „Með því að þjón­usta minni hópa þá eru meiri líkur á að þörfum ein­stak­ling­anna sé mætt.“ Hún bendir á að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sem búa í þessum tveimur húsum séu ekki hluti af þjón­ustu­sam­ingi við Reykja­nesbæ og því geti þeir ekki leitað þjón­ustu til sveit­ar­fé­lags­ins.

„Við fengum full­trúa dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til fundar við okkur og buðum fram krafta okkar til að móta skýr­ari stefnu. Okkur hefur gengið vel hér; við erum með margar fjöl­skyldur þar sem börnin ganga í skóla og leik­skóla og við reynum að sinna þess­ari þjón­ustu eins vel og við get­u­m,“ segir Hall­dóra og bætir því við að þau sjái mik­inn sam­fé­lags­legan ávinn­ing að hafa hæl­is­leit­endur í bæn­um. „Við lærum líka af þeim og það mynd­ast vin­átta og sam­kennd. Við græðum öll á þessu,“ segir hún.

Sam­kvæmt Hall­dóru hefur dóms­mála­ráðu­neytið tekið vel í til­lögur þeirra og von­ast hún til að það muni leita til þeirra í náinni fram­tíð. „Við þurfum öll að huga betur að sál­gæslu og þátt­töku ein­stak­linga í sam­fé­lag­inu. Það er alls ekki kvöð að sinna þessum mála­flokki eða upp­fylla þjón­ustu­samn­ing­inn,“ segir hún.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu um málið hér

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent