Konur í meirihluta forstöðumanna sendiskrifstofa Íslands í fyrsta sinn

Konur eru nú meirihluti forstöðumannanna ef litið er til tvíhliða sendiráðanna en það hefur aldrei gerst áður.

Sendiráð Íslands í Washington
Sendiráð Íslands í Washington
Auglýsing

Í dag taka gildi flutn­ingar á for­stöðu­mönnum sendi­skrif­stofa í utan­rík­is­þjón­ust­unni. Með breyt­ing­unum eru konur nú í meiri­hluta for­stöðu­manna í tví­hliða sendi­ráðum Íslands í fyrsta sinn. Frá þessu er greint í frétt utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Breyt­ing­arnar sem nú taka gildi eru sam­kvæmt ákvörðun utan­rík­is­ráð­herra en til­kynnt var um þær síð­ast­liðið haust. Ekki er verið að skipa neina nýja sendi­herra heldur er um að ræða reglu­bunda flutn­inga á for­stöðu­mönnum sendi­skrif­stof­anna.

Helga Hauks­dótt­ir, frá­far­andi skrif­stofu­stjóri laga- og stjórn­sýslu­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, verður sendi­herra í Kaup­manna­höfn í stað Bene­dikts Jóns­son­ar, sem verður aðal­ræð­is­maður Íslands í Þórs­höfn í Fær­eyj­um. Pétur Gunnar Thor­steins­son, frá­far­andi aðal­ræð­is­mað­ur, kemur til starfa í ráðu­neyt­inu.

Auglýsing

Þá verður María Erla Mar­els­dótt­ir, frá­far­andi skrif­stofu­stjóri þró­un­ar­sam­vinnu­skrif­stofu ráðu­neyt­is­ins, sendi­herra í Berlín í stað Mart­ins Eyj­ólfs­son­ar, sem verður skrif­stofu­stjóri alþjóða- og örygg­is­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Jör­undur Val­týs­son, frá­far­andi skrif­stofu­stjóri, verður fasta­full­trúi Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum í New York í stað Berg­dísar Ell­erts­dótt­ur. Hún verður sendi­herra í Was­hington í stað Geirs H. Haarde en hann tók sæti aðal­full­trúa í stjórn Alþjóða­bank­ans fyrir hönd kjör­dæmis Norð­ur­landa og Eystra­salts­ríkja þann 1. júlí síð­ast­lið­inn.

Her­mann Ing­ólfs­son, sendi­herra í Ósló, tekur við sem fasta­full­trúi Íslands hjá Atl­ants­hafs­banda­lag­inu af Önnu Jóhanns­dóttur sem verður skrif­stofu­stjóri laga- og stjórn­sýslu­skrif­stofu ráðu­neyt­is­ins. Ingi­björg Dav­íðs­dóttir verður sendi­herra í Ósló.

Í frétt ráðu­neyt­is­ins kemur fram að Ísland starf­ræki 26 sendi­skrif­stofur í 21 ríki en sendi­ráð, fasta­nefndir og ræð­is­skrif­stofur með útsendum starfs­mönnum nefn­ist einu nafni sendi­skrif­stof­ur.

Frá og með deg­inum í dag verða konur for­stöðu­menn 9 af 26 sendi­skrif­stofum Íslands – í Berlín, Kampala, Kaup­manna­höfn, Lilongwe, Moskvu, Ósló, Stokk­hólmi, Tókýó og Was­hington – og hefur hlut­fallið aldrei verið hærra. Konur eru nú raunar meiri­hluti for­stöðu­mann­anna ef aðeins er litið til tví­hliða sendi­ráð­anna, eða 9 af 17, en það hefur aldrei gerst áður, eins og áður seg­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent