Calmfors segir Dagens Nyheter að málið gæti skaðað trúverðugleika NEPR

Sænska blaðið Dagens Nyheter fjallar um ráðningarmál Þorvalds Gylfasonar á vef sínum í kvöld og hefur eftir sænska hagfræðiprófessornum Lars Calmfors að málið gæti rýrt trúverðugleika fræðatímaritsins NEPR.

DN.png
Auglýsing

Sænska dag­blaðið Dag­ens Nyheter fjallar um mál Þor­valds Gylfa­sonar á vef sínum í kvöld, en í umfjöllun blaðs­ins er málið rakið og meðal ann­ars rætt við sænska hag­fræði­pró­fess­or­inn Lars Calm­fors.

Hann segir blaða­manni Dag­ens Nyheter að sú afstaða Íslands að leggj­ast gegn því að Þor­valdur komi til greina í rit­stjóra­stöð­una á póli­tískum for­sendum geti skaðað trú­verð­ug­leika fræði­tíma­rits­ins Nor­dic Economic Policy Review (NEPR).

Einnig er rætt við Þor­vald sjálfan, sem segir frá því að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi sjálfur við­ur­kennt að hafa hvorki viljað til­nefna sig né styðja í rit­stjóra­stöð­una. „Þau treysta ekki hag­fræð­ingi sem hefur verið gagn­rýn­inn á efna­hags­stefnu þeirra,“ ef haft eftir Þor­valdi.

Calm­fors, sem eins og fram hefur komið lagði til nafn Þor­valds í stöð­una, segir að honum þyki óboð­legt að íslenska ráðu­neytið hafi neitað að styðja Þor­vald í stöð­una á þeim for­sendum að hann hafi verið virkur í stjórn­mál­um, valið eigi að fara fram á fag­legum for­send­um, en ekki póli­tísk­um. 

Auglýsing

Þess má geta að Calm­fors hefur beðið Bjarna Bene­dikts­son um afsök­un­ar­beiðni, fyrir að halda því fram að mögu­lega hafi hann viljað koma Þor­valdi að í rit­stjóra­stöð­una af því að þeir væru gamlir kunn­ingj­ar. Hann sagði Kvenna­blað­inu í dag að hann hefði aldrei áður á 50 ára starfs­ferli verið sak­aður um kunn­ingja­spill­ingu.

Dag­ens Nyheter rekur að málið hafi vakið mikla athygli á Íslandi og ræðir við Guð­mund Andra Thors­son, þing­mann Sam­fylk­ing­ar, sem óskaði eftir því að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kæmi fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins í dag.

Blaða­maður spurði Guð­mund Andra að því hvort hann ætl­aði sér að leggja fram van­trausts­yf­ir­lýs­ingu á hendur Bjarna og Guð­mundur Andri svar­aði því til að það hefði hann ekki gert, enn­þá, en fyr­ir­sögn frétt­ar­innar í sænska blað­inu er þó „Ráðn­ing­ar­hneyksli skekur rík­is­stjórn Íslands“.

Það er þó ef til vill ofsögum sagt, enda hefur Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lýst því yfir að eðli­legt sé að fjár­mála­ráð­herrar Norð­ur­land­anna hafi sín áhrif á það hver verður rit­stjóri þessa hag­fræði­tíma­rits og stjórn­ar­liðar í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd virt­ust almennt líta á þetta mál sem storm í vatns­glasi, á fundi nefnd­ar­innar í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent