Segir suma þingmenn fela sig á bak við trúnað og lokaðar dyr

Þingmaður Pírata hvetur þingmenn sem hafa orðið vitni af ofbeldi að segja frá því. „Ofbeldi þrífst í þögn þegar gerendur fá að komast upp með hegðun sína í skjóli þess að aðrir annað hvort þegi eða skilji ekki hvað sé í gangi.“

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Auglýsing

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, fjall­aði um ofbeldi og leynd­ar­hyggju í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag en hann sagði suma þing­menn fela sig á bak við trúnað og lok­aðar dyr.

„Of­beldi þrífst í þögn þegar ger­endur fá að kom­ast upp með hegðun sína í skjóli þess að aðrir annað hvort þegi eða skilji ekki hvað sé í gangi.

Nefnd­ar­vinnan hér á þingi er almennt séð bak við luktar dyr og það er bannað að vitna beint í orð manna og fyrir því fyr­ir­komu­lagi eru ágætis rök en á sama tíma er hægt að mis­nota það skjól sem það bann veitir til þess að fela ofbeld­i,“ sagði hann.

Auglýsing



Björn Leví benti á að það væru þó ekki ein­ungis orð sem tjá ofbeldi – það væru ekki síður athafnir sem gætu birst í duldum hót­un­um, ásök­unum eða annarri áreitni. „Með það í huga við ég minna á að það eru Píratar sem hafa helst talað um gagn­sæi í nefndum og opna nefnd­ar­fundi á meðan ýmsir aðrir hafa viljað halda í þann hul­ins­skjöld sem getur falið ofbeld­ið.

Vin­sam­leg­ast hafi það í huga í fram­hald­inu; þau sem hafa séð eða heyrt – segið eitt­hvað. Á þessum vett­vangi felum við okkur oft á bak við að störfin hérna séu í póli­tískum ágrein­ingi á ein­hvern hátt sem sé bara mjög eðli­leg­ur. Það er á vissan hátt skilj­an­legt. En aft­ur, það er hægt að nota það sem skálka­skjól fyrir óásætt­an­lega hegðun og áreitni sem við eigum að gera grein­ar­mun á og upp­lýsa,“ sagði hann.

Vald­­­níðsla og linn­u­­­lausar árásir

Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­maður Pírata, sagði af sér for­­mennsku í stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd við upp­­haf þing­fundar í gær. Í ræðu sinni vegna þessa sagði hún að til­­­raunir minn­i­hlut­ans í nefnd­inni til að sinna því eft­ir­lits­hlut­verki sem hún á að sinna hefðu orðið „meiri­hlut­­­anum til­­­efni til vald­­­níðslu og linn­u­­­lausra árása“.

Í ræð­unni sagði hún skýrasta dæmið vera hvernig staðið hefði verið í vegi fyrir því að frum­­­kvæð­is­at­hugun færi fram á hæfi Krist­jáns Þórs Júl­í­us­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. „Með þessu er meiri­hlut­inn að setja hætt­u­­­legt for­­­dæmi, veikja eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis með fram­­­kvæmd­­­ar­­­vald­in­u.“

Hún sagði enn fremur að meiri­hlut­inn per­­­són­u­­­gerði starf nefnd­­­ar­innar til að ná mark­miðum sín­­­um. „Til þess að rétt­læta þessa aðför sína kýs meiri­hluti nefnd­­­ar­innar að draga per­­­sónu mína sífellt niður í svaðið og nota mig sem blóra­­­böggul.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent