360-370 manns þurfa í sóttkví vegna þriggja smita

Yfirmaður smitrakningarteymisins segir að 360-370 manns þurfi að fara í sóttkví vegna þriggja smita sem greinst hafa hér á landi síðustu daga. Hann segir unnið „á fullu“ að því að hafa samband við fólkið.

Ævar Pálmi Pálmason er yfirmaður smitrakningateymis almannavarna.
Ævar Pálmi Pálmason er yfirmaður smitrakningateymis almannavarna.
Auglýsing

Milli 360-370 manns þurfa að fara í sótt­kví vegna þriggja kór­ónu­veirusmita ­sem greinst hafa hér á landi síð­ustu daga. Meðal ann­ars er um að ræða ­fót­boltalið og gesti í veislum sem áttu í sam­neyti við hina smit­uðu.

Þetta stað­festir Ævar Pálmi Pálma­son, yfir­mað­ur­ smitrakn­ing­arteym­is­ins og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, við Kjarn­ann.

Hann segir að í dag hafi verið unnið að því „á fullu“ að hafa sam­band við fólk sem þarf að fara í sótt­kví.

Auglýsing

Ævar sagði í við­tali við Kjarn­ann í gær að ekki væri hægt að ­full­yrða að knatt­spyrnu­kona í Breiða­bliki hefði smit­ast erlendis og borið smit hing­að. Mögu­lega hefði hún smit­ast hér á landi. Hún kom til lands­ins frá­ ­Banda­ríkj­unum þann 17. júní og reynd­ist nei­kvæð í landamæra­skim­un. Í kjöl­far­ið lék hún tvo fót­bolta­leiki og fór í útskrift­ar­veislu. 

Þann 23. júní fór hún­ aftur í skimun, eftir að hafa fengið upp­lýs­ingar um að her­berg­is­fé­lagi henn­ar ytra hefði greinst með veiruna. Þá var stað­fest að hún var sýkt af veirunni.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna­deild­ar­ ­rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði í fréttum RÚV í gær að upp­runi hópsmits­ins, kunni að vera allt annar en talið var. Starfs­fólk Íslenskrar erfða­grein­ingar vinnur nú að því að kom­ast að hinu sanna.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem birtar voru á covid.is í dag voru í gær ell­efu virk smit hér á landi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent