Rúmlega 27 þúsund færri störf mönnuð á öðrum ársfjórðungi en í fyrra

Samkvæmt nýrri starfaskráningu frá Hagstofu Íslands voru 2.600 laus störf á Íslandi á öðrum ársfjórðungi, en störfunum sem voru mönnuð á íslenskum vinnumarkaði fækkaði um rúmlega 27 þúsund á milli ára.

Mörg störf hafa horfið vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins á ferðaþjónustuna.
Mörg störf hafa horfið vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins á ferðaþjónustuna.
Auglýsing

Sam­kvæmt nýrri starfa­skrán­ingu Hag­stofu Íslands voru 198.700 störf mönnuð á öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs, en það eru 27.200 færri störf en mönnuð voru á sama tíma­bili í fyrra. Laus störf voru einnig mun færri, eða 2.600 á nýliðnum árs­fjórð­ungi á móti 6.200 í fyrra.

Hlut­fall lausra starfa á íslenskum vinnu­mark­aði á síð­asta árs­fjórð­ungi var því um 1,3 pró­sent, á móti 2,7 pró­sentum í fyrra. 

Starfa­skrán­ing Hag­stof­unnar er árs­fjórð­ungs­leg úrtaks­rann­sókn sem gerð er hjá fyr­ir­tækjum á íslenska vinnu­mark­aði sem hafa fleiri en einn starfs­mann að með­al­tali í vinnu á árs­grund­velli. 

Auglýsing

Rann­sóknin var fyrst fram­kvæmd á fyrsta árs­fjórð­ungi í fyrra. Því þarf ekki að koma á óvart að fjöldi starfa hefur aldrei verið jafn lágur í þess­ari mæl­ingu, enda hefur staðan á íslenskum vinnu­mark­aði verið erfið vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.



Mynd: Hagstofan



Erf­iðir tímar á vinnu­mark­aði

Atvinnu­leysi á Íslandi hefur aldrei verið jafn mikið og und­an­farna mán­uði og hafa tug­þús­undir verið án vinnu eða í skertu starfs­hlut­falli. Heild­ar­at­vinnu­leysi náði hæstu hæðum í apr­íl, þegar það mæld­ist 17,8 pró­sent.

Sam­kvæmt þjóð­hags­spá Hag­stof­unnar sem kom út í lok júní er búist við því að atvinnu­leysi innan árs­ins verði að með­al­tali 8,2 pró­sent, sem yrði það mesta í lýð­veld­is­sög­unn­i. 

Fyrra metið var sett árið 2010, í kjöl­far banka- og efna­hags­hruns­ins sem varð á árunum 2008 og 2009, þegar 7,6 pró­­sent lands­­manna voru án atvinnu að með­­al­tali.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent