Afkoma ríkissjóðs jákvæð um 42 milljarða í fyrra

Tekjur ríkissjóðs námu samtals 830 milljörðum króna í fyrra en rekstrargjöld voru 809 milljarðar. Fjármagnsgjöld voru neikvæð um 57 milljarða en hlutdeild í afkomu félaga í eigu ríkisins jákvæð um 78 milljarða.

img_2888_raw_1807130246_10016348994_o.jpg
Auglýsing

Rekstr­ar­af­koma rík­is­sjóðs á síð­asta ári var jákvæð um 42 millj­arða króna í fyrra, sam­an­borið við 84 millj­arða afgang árið áður. Þetta kemur fram í nýbirtum rík­is­reikn­ingi fyrir árið 2019. Í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu segir að tekjur hafi sam­tals numið 838 millj­örðum króna en gjöld 818 millj­örð­um. Hrein fjár­magns­gjöld voru nei­kvæð um 57 millj­arða króna en hlut­deild í afkomu félaga í eigu rík­is­ins jákvæð um 78 millj­arða króna.



Í til­kynn­ingu segir að afkoma árs­ins sam­kvæmt hag­skýrslu­staðli sé lak­ari en áætlun gerði ráð fyr­ir: „Þegar afkoma rík­is­sjóðs sam­kvæmt rík­is­reikn­ingi er borin saman við afkomu­mark­mið fjár­mála­á­ætl­unar og fjár­laga er það gert á grunni hag­skýrslu­stað­als (GFS). Á þeim grunni er heild­ar­af­koma rík­is­sjóðs árið 2019 nei­kvæð um 39 ma.kr. sem er um 24 ma.kr. lak­ari afkoma en end­ur­skoðuð áætlun árs­ins gerði ráð fyr­ir. Fjár­lög árs­ins 2019 gerðu ráð fyrir að heild­ar­af­koma yrði jákvæð um 29 ma.kr.“



Í inn­gangs­orðum að rík­is­reikn­ingi ritar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að blikur hafi verið á lofti í efna­hags­um­hverf­inu strax á fyrstu mán­uðum árs­ins 2019. Umsvif ferða­þjón­ust­unnar hafi minnkað og það hafi haft bæði bein og óbein áhrif á rík­is­reikn­ing­inn.

Auglýsing


„Nú er orðið ljóst að sá mót­byr sem ferða­þjón­ustan mætti snemma árs 2019 var aðeins for­leikur að þeim ófyr­ir­séðu efna­hags­hremm­ingum á flestum sviðum atvinnu­lífs­ins sem fylgdu heims­far­aldri kór­ónu­veirunnar á vor­dögum þessa árs. Má telja að þróun mála árið 2019 hefði getað orðið upp­hafið að skamm­vinnri efna­hagslægð en að hún hafi nú stökk­breyst í einn dýpsta og víð­tæk­asta efna­hags­skell í manna minn­um. Engu að síður telja flestir spá­að­ilar að kreppan verði skamm­vinn og að efna­hags­bat­inn hefj­ist þegar á árinu 2021,“ segir Bjarni enn fremur í inn­gangs­orðum rík­is­reikn­ings.



Þá segir hann helstu áskorun stjórn­valda vera að skapa góð skil­yrði fyrir efna­hags­bata.  „Svig­rúm rík­is­sjóðs til að auka við skuldir sínar gerir stjórn­völdum betur kleift að verja grunn­stoðir sam­fé­lags­ins og tryggja öfl­uga við­spyrnu fyrir íslenskt efna­hags­líf án þess að fórna sjálf­bærni opin­berra fjár­mála,“ segir Bjarni í lok inn­gangs­orða að rík­is­reikn­ingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent