Þurfum að læra að lifa með faraldrinum

Á fundi Almannavarna í dag sagði Þórólfur Guðnason að við þyrftum að hugsa til langs tíma í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Þrátt fyrir að innanlandssmit sé lítið sem ekkert er faraldurinn ekki á undanhaldi úti í heimi.

Þórólfur Guðnason Mynd: Lögreglan
Auglýsing

Stjórnun aðgerða vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins mun taka ein­hverjum breyt­ingum á næst­unni, þannig að hún verði ekki lengur í formi krísu­stjórn­un­ar. Þetta sagði Þórólfur Guðna­son á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Ég held að við þurfum að breyta aðeins um áherslur núna og líta á stjórnun og aðgerðir gegn þessum far­aldri sem svona dag­lega vinnu og færa þetta yfir í rútínu­vinn­u,“ sagði Þórólf­ur. 



Hann sagði að við stæðum á kross­götum í dag í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn. Lítið er um inn­an­lands­smit en far­ald­ur­inn er ekki á und­an­haldi úti í heimi. Í þessu sam­hengi benti hann á að nú grein­ist mesti fjöldi á hverjum degi sem greinst hefur frá því að far­ald­ur­inn hófst.



„Það er alveg ljóst að þessi far­aldur er ekki á und­an­haldi í heim­inum nema síður sé og engan veg­inn hægt að segja til um hvenær honum muni ljúka í heim­in­um. Þetta er hugsun sem við þurfum að hafa í huga og ég held að á þessum tíma­punkti þá þurfum við að hugsa fram í tím­ann,“ sagði Þórólf­ur. 

Auglýsing


Að mati Þór­ólfs þarf fólk að aðlaga sig að far­aldr­inum og læra að lifa með hon­um. „Þetta er veira og far­aldur sem við þurfum að lifa með næstu mán­uði eða jafn­vel næstu ár og við þurfum að leggja upp lang­tíma­plön um það hvernig við ætlum að lifa með þessum far­aldri erlendis og hvað við ætlum að gera til að lág­marka áhætt­una á því að hér blossi upp far­aldrar inn­an­lands.“



Hann bætti því við að við gætum hrósað happi yfir því að með sam­stöðu hafi Íslend­ingum tek­ist að bæla far­ald­ur­inn nið­ur. Nú þurfi aðgerðir að miða að því að bæði lág­marka útbreiðslu veirunnar sem og að koma efna­hag lands­ins í gott horf.



„Ég held að í þess­ari veg­ferð þurfi margir aðilar að koma að borð­inu auk sótt­varna­læknis með stjórn­völdum til að ákvarða hvaða leiðir eru best­ar. Þó að auð­vitað yrðu sótt­varna­sjón­ar­miðin efst í mínum huga í því. En við þurfum að hugsa til lengri tíma,“ sagði Þórólf­ur.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent