Staðan á Suðurnesjum „ógnvænleg“

Þær 250 milljónir sem sveitarfélögin á Suðurnesjum fengu í framlag frá ríkinu í vor munu duga skammt að mati framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Hún gerir ráð fyrir því að atvinnuleysi nálgist 19 prósent í september á svæðinu.

Reykjanesbær er fjölmennasta sveitarfélag Suðurnesja.
Reykjanesbær er fjölmennasta sveitarfélag Suðurnesja.
Auglýsing

Staðan á Suð­ur­nesjum er ógn­væn­leg segir Berg­lind Krist­ins­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Sam­bands sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­nesjum, í sam­tali við Kjarn­ann um horfur á svæð­inu. Kjarn­inn hafði sam­band við Berg­lindi vegna þess að í vik­unni var til­kynnt um styrk frá sveita­stjórna- og sam­göngu­ráðu­neyti til sex sveit­ar­fé­laga vegna hruns í ferða­þjón­ustu í kjöl­far COVID-19. Sveit­ar­fé­lögin eru Mýr­dals­hrepp­ur, Skaft­ár­hrepp­ur, Skútu­staða­hrepp­ur, Blá­skóga­byggð, Rangár­þing eystra og Sveit­ar­fé­lagið Horna­fjörð­ur. 

Byggða­stofnun gerði sam­an­tekt fyrr í ár á áhrifum nið­ur­sveiflu í ferða­þjón­ustu á atvinnu­á­stand á lands­byggð­inni. Nið­ur­stöð­urnar leiddu í ljós að mörg sveit­ar­fé­lög yrðu fyrir miklum búsifjum vegna ástands­ins og þá sér­stak­lega níu sveit­ar­fé­lög, þau sex sem áður voru upp talin og þrjú sveit­ar­fé­lög á Suð­ur­nesjum; Reykja­nes­bær, Suð­ur­nesja­bær og Sveit­ar­fé­lagið Vog­ar.

Fengu 250 millj­ónir í vor

Spurð að því hvort henni finn­ist að litið hafi verið fram hjá sveit­ar­fé­lögum á Suð­ur­nesjum við styrkút­hlut­un­ina bendir Berg­lind á að sveit­ar­fé­lögin hafi fengið styrk í vor. „Við fengum COVID fram­lag í vor, 250 millj­ón­ir. Það er styrkur sem fór í 17 verk­efni sem við erum að vinna að hérna á svæð­inu. En það nátt­úr­lega liggur í augum uppi að það mun ekki vega mjög þungt í því ástandi sem við erum að horfa upp á í dag,“ segir Berg­lind.

Auglýsing

Hún segir að von­ast hafi verið til þess á Suð­ur­nesjum að ferða­þjón­ustan myndi rétta úr kútnum og að aukn­ing hafi orðið í flugi eftir miðjan júní. „En nú blasa við ný sjón­ar­horn á þetta verk­efni. Við erum nátt­úr­lega áhyggju­full því það er byrjað að segja aftur upp fólki eða fólk er að fara út af hluta­bóta­leið­inni þannig að það má gera ráð fyrir því að þá fjölgi á atvinnu­leys­is­skránn­i,“ segir Berg­lind.

42 pró­sent tekna úr greinum tengdum ferða­þjón­ustu

Von er á því að atvinnu­leysi nálgist 19 pró­sent í sept­em­ber að sögn Berg­lind­ar. Þar að auki sé lang­tíma­at­vinnu­leysi tölu­vert en fjöldi þeirra sem hafa verið á atvinnu­leys­is­skrá lengur en í tólf mán­uði sé um 450. Hún segir stöð­una ógn­væn­lega og að ástandið hafi eðli máls­ins sam­kvæmt bæði áhrif á ríki og sveit­ar­fé­lög.

Að hennar sögn koma um 42 pró­sent tekna sveit­ar­fé­laga á svæð­inu úr greinum sem tengdar eru ferða­þjón­ustu með einum eða öðrum hætti. En aðrir atvinnu­vegir vega mis­jafn­lega upp á móti hruni ferða­þjón­ust­unn­ar. „Við sjáum eins og í Grinda­vík þar sem sjáv­ar­út­veg­ur­inn er meiri en ferða­þjón­usta. Þar af leið­andi hefur atvinnu­leysi verið minna þar, það er rétt um níu pró­sent,“ segir Berg­lind.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent