Unnið að tæknilegri útfærslu á styttri sóttkví

Verið er að vinna í tæknilegri útfærslu á styttri sóttkví, þannig að þeir sem verði útsettir fyrir kórónuveirusmiti þurfi ekki að vera 14 daga í sóttkví. Mögulega yrði tekið sýni úr fólki á sjöunda degi, segir sóttvarnalæknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Auglýsing

Björn Ingi Hrafns­son fjöl­miðla­maður var mættur á upp­lýs­inga­fund almanna­varna í dag að venju og spurði Þórólf Guðna­son sótt­varna­lækni hvort til skoð­unar væri að stytta þá sótt­kví sem fólk þarf að fara í eftir að hafa verið útsett fyrir smiti hér inn­an­lands. 

„Já, ég ætl­aði nú ekki að tala um þetta núna, ég ætl­aði að geyma þetta þar til síð­ar,“ sagði Þórólfur við Björn Inga, en sagði þetta þó „al­veg hár­rétt“ hjá hon­um.

Núna þurfa allir sem verða útsettir fyrir smiti að fara í 14 daga sótt­kví, en Þórólfur sagði að það væri svo að flestir sem væru í raun smit­aðir væru komnir með ein­kenni tölu­vert fyrr. Það væri því til skoð­unar að taka sýni úr fólki í sótt­kví, til dæmis á sjö­unda degi, og fólk gæti þá verið laust úr sótt­kví fyrr en áður hefur ver­ið. 

„Veiran grein­ist hjá ein­stak­lingum kannski 2-3 dögum áður en ein­kenni hefj­ast og það kemur vel til álita að taka sýni kannski á sjö­unda degi [...] og stytta þannig sótt­kvína. Við erum að skoða útfærsl­una tækni­lega og ég held það væri mjög til bóta,“ sagði Þórólf­ur.

Alls eru 307 manns í sótt­kví á Íslandi í dag og hefur fjöldi þeirra farið síg­andi und­an­farna daga.

Grín­að­ist með mál Greenwood og Foden

Þórólfur var á fund­inum í dag spurður út í mál ensku fót­bolta­mann­anna sem hefur verið í hámæli í fjöl­miðlum víða um heim í dag eftir að fyrst var greint frá á fót­bolta­vefnum 433.is í morg­un.

Tveir ungir knatt­spyrnu­menn í enska lands­lið­inu, Mason Greenwood og Phil Foden, voru í sam­skiptum við ungar íslenskar konur á hót­eli enska liðs­ins um helg­ina, þvert á gild­andi regl­ur.

Auglýsing


Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar mál þeirra, en þeir hafa einnig báðir verið teknir út úr enska lands­liðs­hópnum og fara ekki með lið­inu til Dan­merk­ur, þar sem næsti leikur liðs­ins er, heldur beint heim til Eng­lands á ný.

„Það ætti að ógilda úrslitin í leiknum og jafn­vel úrskurða úrslitin okkar meg­in,“ sagði Þórólfur og hló, áður en hann stað­festi að þarna væri „klár­lega“ um brot á sótt­kví að ræða.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent