„Við verðum að berj­ast“

Formaður Landssambands eldri borgara segir eldra fólk þekkja tímana tvenna. „Þegar ég var barn man ég eftir skömmtunarseðlum og ég man að mamma beið í biðröð eftir að kaupa kjólefni. Við erum ekki í neinu slíku, þrátt fyrir kreppu.“

Þórunn Sveinbjörnsdóttir
Þórunn Sveinbjörnsdóttir
Auglýsing

„Við verðum að berj­ast. Við verðum að halda áfram og við vitum það. Við þekkjum líf­ið, við erum lífs­reyndar mann­eskjur og við gef­umst ekki upp svo gletti­lega – en það tekur í.“

Þetta sagði Þór­unn Svein­björns­dótt­ir, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara, á fundi almanna­varna í morg­un.

Alls greindust 29 smit inn­an­lands í gær, þar af voru 20 í sótt­kví eða 71 pró­sent. Á landa­mær­unum greindust 9 smit.

Auglýsing

Áfallið á Landa­koti náði til eldra fólks

„Mig langar sér­stak­lega að tala til ykkar sem eldri eru. Þetta haust ætlar að reyn­ast okkur tölu­vert erfitt og þess vegna skiptir máli að fá að koma og hvetja ykkur til dáða og um sam­heldn­ina sem skiptir öllu máli.

Þessi hluti veirunnar ætlar að vera okkur líka mun erf­ið­ari. Það eru núna yfir 209 sem eru yfir 60 ára aldri – það er mun hærra en það var í vor sem segir okkur að áfallið á Landa­koti hefur náð veru­lega til eldra fólks,“ sagði Þór­unn. 

Hún benti á að margt væri hægt að gera til að létta lífið þessa dag­ana. „Það eru biðraðir í mörgum búð­um. Þið þurfið að hugsa fyr­ir­fram. Fara helst snemma í mat­vöru­verslun og panta jafn­vel vörur á net­in­u.“

Þekkja tím­ana tvenna

Þór­unn skor­aði jafn­framt á eldra fólk að geyma þau erindi sem ekki skipta máli í bili. „Bara salta þau á blaði og eiga þau til góða þegar við förum að mega hreyfa okkur aðeins meira. En við megum ekki gleyma að fara út. Við megum ekki gleyma að fara og hreyfa okk­ur. Það skiptir alveg höf­uð­máli.“

„Þessi stóri hóp­ur, þessi 45.000 manna hópur rúm­lega, sem er yfir sex­tugt, er sterkur hópur og dug­leg­ur. Hann er ótrú­lega seigur og hann skiptir höf­uð­máli í okkar sam­fé­lagi.

Og við þekkjum tím­ana tvenna. Margt af okkar fólki lifði af og lifði í krepp­unni '30 og '31. Margir muna skömmt­un­ar­seðla. Þegar ég var barn man ég eftir skömmt­un­ar­seðlum og ég man að mamma beið í bið­röð eftir að kaupa kjólefni. Við erum ekki í neinu slíku, þrátt fyrir kreppu. Við þurfum þess vegna að vera sterk og við verðum sterk – og ég ætl­ast til þess að fjöl­skyldur standi saman og hlúi að sínu fólki.“

Hægt að gera krafta­verk í að rjúfa ein­mana­leika með því að vera virk í að hjálpa öðrum

Þór­unn kall­aði eftir fleiri síma­vinum en hún sagði á fund­inum að þeir væru að gera ótrú­lega fína hluti. „Við getum gert krafta­verk í að rjúfa ein­mana­leika með því að vera virk í að hjálpa öðr­um. Ég held að við þurfum að bretta upp ermar og fara í þetta. Það er gef­andi að vera sjálf­boða­lið­i.“

Hún hvatti fólk líka til að forð­ast leið­in­legar frétt­ir, sér­stak­lega fyrir svefn­inn. „Það er gott að fara í hug­leiðslu og reyna að anda djúpt,“ sagði hún. „Já­kvæðnin kemur okkur yfir þetta fram yfir miðjan nóv­em­ber og þá tök­umst við á við hvað kemur næst. Við ætlum að vera sterk og leysa þetta sam­an.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent