Kolbeinn: RÚV þarf að fá útvarpsgjaldið bætt að fullu

Þingmaður Vinstri grænna telur að til þess að hægt sé að halda rekstri Ríkisútvarpsins áfram gangandi þurfi það að fá útvarpsgjaldið bætt að fullu.

Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG.
Auglýsing

Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, segir að Rík­is­út­varpið (RÚV) sé að miklu leyti „vagga okkar menn­ingar og upp­lýs­inga­flæðis sem við þurf­um“. Hann er þeirrar skoð­unar að bæta þurfi RÚV upp að fullu minnk­andi útvarps­gjald og til þess að hægt sé að halda rekstr­inum áfram gang­andi þurfi RÚV að fá útvarps­gjaldið bætt að fullu.

Þetta kom fram í máli þing­manns­ins undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Við lifum á tímum þar sem sam­eig­in­legur skiln­ingur er á und­an­haldi. Stjórn­mála­menn, hvar í löndum sem þeir eru, skirr­ast ekki við að halda fram sínum sann­leika, sínum stað­reynd­um. Upp og nið­ur, austur og vest­ur, við erum ekki lengur sam­mála um hvað það er.

Á slíkum tímum er öfl­ugir fjöl­miðlar mik­il­væg­ari en nokkru sinni fyrr. Það hefur sýnt sig í þeim heims­far­aldri sem nú hefur skekið heims­byggð­ina um nokk­urra miss­era skeið hve öfl­ugur rík­is­fjöl­mið­ill er nauð­syn­legur lýð­ræð­is­legri umræðu á Íslandi, upp­lýs­inga­gjöf og því að koma á fram­færi því sem við þurfum öll að vita,“ sagði hann.

Auglýsing

Kol­beinn benti á að staða RÚV væri erf­ið, eins og ann­arra fjöl­miðla. 

„Við erum hér með sér­stakt mál í gangi um stuðn­ing fyrir einka­rekna fjöl­miðla. RÚV hefur eins og aðrir fjöl­miðlar þurft að búa við að tekjur hafa dreg­ist saman vegna minnk­andi aug­lýs­inga­sölu. Í ofaná­lag hefur RÚV líka þurft að búa við það að tekjur vegna útvarps­gjalds hafa dreg­ist sam­an, færri greiða útvarps­gjaldið en gert hafa. Þetta eru fjár­hæðir sem skipta rekstur Rík­is­út­varps­ins gríð­ar­lega miklu máli og þar með talið okkur öll.

Rík­is­út­varpið er að miklu leyti vagga okkar menn­ingar og upp­lýs­inga­flæðis sem við þurf­um. Ég er þeirrar skoð­un­ar, for­seti, að bæta þurfi RÚV upp að fullu minnk­andi útvarps­gjald. Til að við getum haldið rekstr­inum áfram þarf RÚV að fá útvarps­gjaldið bætt að fullu,“ sagði þing­mað­ur­inn að lok­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent