Støjberg fer fyrir landsdóm

Meirihluti er nú í danska þinginu fyrir því að fyrrum ráðherra innflytjendamála landsins fari fyrir landsdóm vegna brota í embætti.

Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála Danmerkur
Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála Danmerkur
Auglýsing

Ljóst er að Inger Støjberg, fyrrum ráð­herra inn­flytj­enda­mála Dan­merk­ur, muni fara fyrir lands­dóm þar í landi vegna laga­brota sem hún fram­kvæmdi í emb­ætt­is­tíð sinni. Þetta kemur fram á vef danska rík­is­út­varps­ins, DR.

Sam­kvæmt frétt DR hafa þing­menn Sós­í­alde­mókra­ta­flokks Dan­merkur ákveðið að kjósa með því að Støjberg fari fyrir lands­dóm, en með því er kom­inn meiri­hluti í þing­inu fyrir ákærunni. Þetta yrði sjötta lands­dóms­málið í sögu Dan­merk­ur.

Kjarn­inn hefur áður fjallað um mál Støjberg, en hún braut lög með fyr­ir­skip­unum sínum um mál­efni hæl­is­leit­enda, sam­kvæmt skýrslu sem birt­ist í síð­asta mán­uði frá sér­stakri rann­sókn­ar­nefnd.

Í skýrslu nefnd­ar­innar kemur fram að ákvörðun ráð­herr­ans fyrr­ver­andi um að aðskilja gifta hæl­is­leit­endur ef annar aðil­inn væri undir 18 ára aldri hafi verið ólög­mæt. Einnig hefði Støjberg, að minnsta kosti sex sinn­um, bein­línis sagt ósatt við yfir­­heyrslur þing­­nefndar (sam­råd).

Auglýsing

Óljóst var hvort Sós­í­alde­mókra­ta­flokk­ur­inn myndi styðja ákæru á hendur Støjberg fyrir lands­dóm, þar sem það gæti aukið lík­urnar á því að ráð­herrar innan flokks­ins yrðu einnig ákærðir fyrir lands­dóm. Ráð­herrar innan flokks­ins hafa verið ásak­aðir um að brjóta lög í minka­mál­inu svo­kall­aða, þegar ákveðið var að aflífa alla minka Dan­merkur af ótta við að nýtt afbrigði af kór­ónu­veirunni myndi breið­ast út með þeim. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent