Tæplega 500 manns hafa þegar fengið tvær sprautur

Búið er að gefa rúmlega 40 prósent af Íslendingum yfir 90 ára aldri a.m.k. einn skammt af bóluefni og tæp 13 prósent þeirra sem eru 80-89 ára. Ný tölfræðisíða um bólusetningu hefur verið sett í loftið á vefnum covid.is.

Á nýrri tölfræðisíðu sem sett var í loftið í dag má fylgjast með framgangi bólusetningar gegn COVID-19 hér á landi.
Á nýrri tölfræðisíðu sem sett var í loftið í dag má fylgjast með framgangi bólusetningar gegn COVID-19 hér á landi.
Auglýsing

5.725 manns hafa fengið eina sprautu af bólu­efnum Pfiz­er/BioNTech eða Moderna til þessa á Íslandi og 480 manns hafa fengið tvær sprautur og því lokið bólu­setn­ing­u. 

Rúm­lega 40 pró­sent fólks yfir 90 ára aldri hefur fengið a.m.k. eina sprautu og tæp 13 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 80-89 ára.

Þetta kemur fram vefnum covid.is, en þar er búið að setja upp töl­fræði­síðu um fram­gang bólu­setn­ingar á Íslandi. Vef­ur­inn, sem fór í loftið í dag, er hlið­stæður töl­fræði­vefnum þar sem hægt hefur verið að fylgj­ast með fram­gangi COVID-19 far­ald­urs­ins á Íslandi, smit­um, fjölda í sótt­kví og sjúkra­húsinn­lögn­um.

Hin ýmsa töl­fræði er tekin sam­an, meðal ann­ars hversu margir skammtar af bólu­efn­unum hafa verið gefnir á hverjum degi. Á því stöpla­riti má sjá tvær súlur dag­ana 29. des­em­ber og 30. des­em­ber, þegar tæp­lega 5.000 manns voru bólu­sett með bólu­efni Pfizer og BioNTech eftir að fyrsta send­ingin bólu­efn­is­ins kom til lands­ins.

Auglýsing

Nú er að hefj­ast seinni bólu­setn­ing þeirra sem fengu bólu­setn­ingu í kjöl­far fyrstu send­ing­ar­innar frá Pfizer og í gær voru 487 skammtar af því bólu­efni gefn­ir. Þegar næsta send­ing bólu­efna kemur til lands­ins er þó áætlað að útdeila öllum skömmt­unum strax, í stað þess að halda hluta til hlið­ar­.

Sam­kvæmt því sem kom fram í máli Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis á upp­lýs­inga­fundi á mánu­dag munu 3.500 manns í elstu ald­­ur­s­hópum fá sína fyrstu sprautu af bólu­efn­inu í þess­ari viku, en þeir skammtar komu til lands­ins á mánu­dags­morg­un.

Eng­inn yfir 70 ára aldri fékk Moderna-­bólu­efnið

Dag­ana 13., 14. og 15. jan­úar var 1.259 skömmtum af bólu­efni Moderna útdeilt. Sam­kvæmt því sem fram kemur á bólu­setn­ing­ar­vefnum á covid.is fékk eng­inn yfir 70 ára aldri bólu­efni Moderna. 

Hópar sem voru bólu­settir með því bólu­efni voru fram­línu­starfs­menn á borð við lög­reglu­menn, starfs­fólk í far­sótt­ar­húsi og sjúkra­flutn­inga­menn.



Enginn yfir 70 ára aldri hefur fengið Moderna-bóluefnið. Mynd: Covid.is



Á vefnum má einnig sjá töl­fræði yfir fjölda bólu­settra á hverja 100.000 íbúa eftir heil­brigð­is­um­dæmi. Öll heil­brigð­is­um­dæmin eru þar á svip­uðu róli, með á annað pró­sent íbúa bólu­sett a.m.k. einu sinni.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent