Leitaði svara hjá lögreglustjóra en ákvað síðan að svara ekki fjölmiðlum

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir í svari við fyrirspurn Kjarnans að hún hafi ekki talið við hæfi að veita fjölmiðlum upplýsingar um samkomuna í Ásmundarsal á Þorláksmessu, eftir að ljóst var hvers eðlis málið var.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir að „allir helstu fjöl­miðl­ar“ hafi haft sam­band við sig á aðfanga­dag vegna sam­kom­unnar í Ásmund­ar­sal sem lög­reglan stöðv­aði á Þor­láks­messu­kvöld og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra var við­stadd­ur. 

Þetta kemur fram í svari ráð­herra við fyr­ir­spurn Kjarn­ans, en ekki kemur skýrt fram í svar­inu hvort allir helstu fjöl­miðlar lands­ins hafi spurt sér­stak­lega út í verk­lags­reglur lög­reglu í tengslum við dag­bók­ar­færslu sem kom út að morgni aðfanga­dags og vakti mikla athygli.

Fram kom í máli ráð­herra í gær að hún hefði ekki veitt fjöl­miðlum neinar upp­lýs­ingar um málið þrátt fyrir að hafa hringt tví­vegis í Höllu Berg­þóru Björns­dóttur lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á aðfanga­dag til þess að leita sér upp­lýs­inga.

„Ég fékk spurn­ingar frá fjöl­miðlum sem ég þurfti að svara og ákvað síðan að svara ekki,“ sagði Áslaug Arna í sam­tali við frétta­mann Stöðvar 2 fyrir utan ráð­herra­bú­stað­inn í gær.

Að eigin sögn hringdi Áslaug Arna í lög­reglu­stjór­ann til þess að geta svarað spurn­ingum fjöl­miðla um málið og þá sér­stak­lega frétta­til­kynn­ingu lög­reglu, svo­kall­aða dag­bók­ar­færslu, þar sem tekið var fram að „hátt­virtur ráð­herra“ hefði verið við­staddur sam­kom­una í Ásmund­ar­sal.

„Þegar ljóst var hvers eðlis málið var og hvernig það var að þró­ast þennan sama dag, taldi ég ekki við hæfi að tjá mig um það – hvorki um dag­bók­ar­færsl­una sjálfa né aðra anga máls­ins,“ segir Áslaug Arna í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Ræddi við Bjarna eftir sím­töl við lög­reglu­stjóra

Kjarn­inn spurði dóms­mála­ráð­herra hvort hún hefði átt ein­hver sam­skipti við Bjarna Bene­dikts­son á aðfanga­dag og ef svo væri, hvort þau sam­skipti hefðu átt sér stað fyrir eða eftir að dóms­mála­ráð­herra hringdi í lög­reglu­stjór­ann.

Auglýsing

Áslaug Arna seg­ist í svari sínu ekki hafa átt sam­skipti við Bjarna áður en hún átti sam­skipti við lög­reglu­stjóra, en að hún hafi átt sam­skipti við Bjarna síðar á aðfanga­dag.

Lítur á sam­skiptin sem óform­leg

Fram kom í máli dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í gær að hún liti svo á að sam­skipti sín við lög­reglu­stjóra á aðfanga­dag hefðu verið óform­leg og því ekki skrán­ing­ar­skyld, sam­kvæmt gild­andi reglu­gerð um skrán­ingu sam­skipta í Stjórn­ar­ráði Íslands­.

„Ég hef marg­ít­rekað hvað fór okkar á milli. Ég spurði um þær verk­lags­­reglur sem giltu um þessar dag­­bók­­ar­­færslur því ég hafði fengið spurn­ingar um það frá fjöl­miðlum sem og hvaða per­­són­u­vernd­­ar­­sjón­­ar­mið gilt­u,“ sagði Áslaug Arna í þing­inu í gær.

Hún bætti því við að hún hefði ekki áhyggjur af ráð­herrum rík­­is­­stjórn­­­ar­innar hvað þetta atriði varðar heldur hafi hún ein­fald­­lega viljað geta svarað spurn­ingum fjöl­miðla um per­­són­u­vernd­­ar­­sjón­­ar­mið og hversu langt lög­­reglan geti gengið í fram­­setn­ingu upp­­lýs­inga í dag­­bók­­ar­­færslum sín­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent