26.675 einstaklingar á vanskilaskrá - listinn heldur áfram að styttast

10016471563_0af3028882_c.jpg
Auglýsing

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Credit­info eru 26.675 ein­stak­lingar á van­skila­skrá fyr­ir­tæk­is­ins í dag. Ein­stak­lingum á list­anum fer fækk­andi, en til marks um það voru 27.417 ein­stak­lingar á van­skila­skrá á sama tíma í fyrra.

Aðilum sem eru með áskrift­ar­samn­ing við Credit­info býðst að senda mál inn á van­skila­skrá. Til þess að senda inn mál þurfa van­skil að hafa staðið yfir í 40 daga eða meira og fjár­hæðin að nema 50.000 krónum að lág­marki hjá ein­stak­ling­um. Það má þó skrá árang­urs­laus fjár­nám og gjald­þrota­úr­skurði án til­lits til fjár­hæða.

Banka­hrunið hafði sitt að segja



Ein­stak­lingum á van­skila­skrá fjölg­aði ört í kjöl­far efna­hags­hruns­ins í lok árs 2008. Við upp­haf hruns­ins voru 16.859 ein­stak­lingar á list­an­um, en ári síðar voru þeir orðnir 19.530 tals­ins, og hafði fjölgað um hátt í 2.700 manns á aðeins einu ári.

Fjöld­inn náði svo hámarki í nóv­em­ber árið 2013 þegar 28.140 ein­stak­lingar voru skráðir á van­skila­skrá Credit­in­fo, en þá byrj­aði að fækka aftur á list­anum og hefur sú þróun varað nán­ast sleitu­laust.

Auglýsing

Flestir á van­skila­skrá eru á aldr­inum 30 til 39 ára, eða 10,7 pró­sent þeirra sem til­heyra ald­urs­hópnum sem er sama hlut­fall og á ald­urs­bil­inu 40 til 49 ára, en þar eru færri ein­stak­lingar und­ir.

Ástandið verst á Suð­ur­nesjum



Þá eru 16,8 pró­sent ein­stæðra mæðra og 14,5 pró­sent ein­stæðra feðra á van­skila­skrá, en karlar eru mun lík­legri til að lenda á list­an­um en  kon­ur, 10,3 pró­sent karla eru á van­skila­skrá og 6,1 pró­sent kvenna.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru 9,5 pró­senta íbúa á van­skila­skrá, en ástandið er sýnu verst á Reykja­nesi þar sem 15,4 pró­sent íbúa eru á list­an­um.

Sam­kvæmt nið­ur­stöðum Credit­info er ein­stæður faðir á aldr­inum 18-29 ára búsettur á Reykja­nesi lík­leg­astur til að fara á van­skila­skrá, á meðan öldruð kona í þétt­býli á Aust­ur­landi er ólík­leg­ust til að hafna á list­an­um.

Fyr­ir­tækjum á van­skila­skrá fækkar líka



Sama þróun hefur átt sér stað hvað varðar lög­að­ila, en fyr­ir­tækjum á van­skila­skrá fer sömu­leiðis fækk­andi, þó er þró­unin þar ekki eins ör. Í októ­ber árið 2008 voru 3.958 fyr­ir­tæki eða félög á van­skila­skrá Credit­in­fo. Ári síðar voru þau orðin 5.277 og hafði fjölgað um ríf­lega þrettán hund­ruð.

Fjöld­inn náði hámarki í ágúst­mán­uði árið 2012 þegar lög­að­ilar á van­skila­skrá urðu 6.978 tals­ins. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Credit­info eru nú 6.399 félög á van­skila­skrá fyr­ir­tæk­is­ins, sam­an­borið við 6.421 mán­uð­inn á undan og 6.751 á sama tíma fyrir ári.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None