80 nemendur Laugarnesskóla í sóttkví eftir að COVID-19 smit greindist

Nemendur og starfsmenn skólans sem eru útsettir fyrir smiti verða sendir í sýnatöku á morgun, þriðjudag.

Laugarnesskóli_-_panoramio.jpeg
Auglýsing

Alls 80 nem­endur og fjórir kenn­arar Laug­ar­nes­skóla eru í sótt­kví vegna mögu­legrar útsetn­ingar fyrir smiti í skól­anum í síð­ustu viku.

Gert er ráð fyrir því að sótt­kvíin standi í dag og á morgun og að allir sem um ræðir verði boð­aðir í sýna­töku á morg­un, þriðju­dag.

Þetta kemur fram í orð­send­ingu til allra for­eldra og for­ráða­manna barna við skól­ann í morg­un­. Þar segir enn fremur að vonir standi til að skóla­hald verði aftur komið í eðli­legt horf á mið­viku­dag­inn.

Smit í súráls­skipi við Reyð­ar­fjörð

Í gær­kvöldi var greint frá því að tíu af nítján skip­verjum á súráls­skipi sem kom til Reyð­­ar­fjarðar og lagði að Mjó­eyr­­ar­höfn væru með COVID-19. 

Í til­­kynn­ingu frá lög­­­reglu­­stjór­­anum á Aust­­ur­land­i. 

Auglýsing
Þar segir að skip­­stjóri hafi fyrir komu skips­ins gert grein fyrir að sjö manns í áhöfn væru veik­­ir. „Að feng­inni ein­­kenna­lýs­ingu og öðrum far­ald­­ur­s­fræð­i­­legum þáttum var ákveðið að taka sýni úr allri áhöfn­inni, sem náð­ist undir kvöld í gær. Af nítján skip­verjum reynd­ust tíu vera með COVID-19. Aðgerða­­stjórn og umdæm­­is­læknir sótt­­varna í sam­vinnu við umboðs­­mann útgerð­­ar­innar og skip­­stjór­ann hafa gefið leið­bein­ingar um sótt­varna­ráð­staf­anir um borð.“

Lækn­is­fræði­legt eft­ir­lit með skip­verj­unum verður unnið sam­­kvæmt fyr­ir­liggj­andi vinn­u­­reglum þar um af COVID-­­deild Land­­spít­­ala og HSA. Sýna­­taka og allt annað tengt þessu hefur sam­­kvæmt til­­kynn­ing­unni gengið vel og aðgerða­­stjórn telur ekki hættu á að smitið dreifi sér.

Hinir smit­uðu eru allir í ein­angrun um borð og aðrir í sótt­­­kví. Hefur svo verið frá komu skips­ins til hafn­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent