Áfengisneysla með öllu óholl fólki undir fertugu

Ný rannsókn á áfengisneyslu hefur leitt í ljós að hún er óholl ungu fólki óháð magni. Hins vegar geti eldra fólk haf ávinning af því að drekka áfengi í litlum skömmtum.

Við rannsóknina kom í ljós að á árinu 2020 neyttu 1,34 milljarðar manneskja áfengis í óhóflegu magni.
Við rannsóknina kom í ljós að á árinu 2020 neyttu 1,34 milljarðar manneskja áfengis í óhóflegu magni.
Auglýsing

Vís­inda­tíma­ritið Lancet hefur birt nið­ur­stöður rann­sóknar á áfeng­is­neyslu, þar sem neyslu­mynstur í 204 löndum var skoðað og borið saman við skýrslu um sjúk­dóma­væð­ingu á heims­vísu til þess að áætla það magn áfengis sem fólk getur neytt án þess að stofna heilsu sinni í hættu.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar eru marg­þætt­ar, en benda meðal ann­ars til þess að fólk 39 ára og yngra ætti að halda sig alfarið frá áfengi, en að eldra fólk geti haft gagn af því að drekka það í litlu magni. Þá benda nið­ur­stöð­urnar til þess að ráð­legt geti verið að miða ráð­legg­ingar um áfeng­is­neyslu við aldur og stað­setn­ingu.

Auglýsing

Við rann­sókn­ina kom í ljós að á árinu 2020 neyttu 1,34 millj­arðar mann­eskja áfengis í óhóf­legu magni. Lík­leg­asti hóp­ur­inn til þess að gera slíkt séu karl­menn á aldr­inum 15 til 39 ára og ættu ráð­legg­ingar til þessa hóps því að vera lægri en til ann­arra, en sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar geta karl­menn á þessum aldri aðeins neytt eins tíunda af hefð­bundnum áfeng­is­drykk án þess að stofna heilsu­fari sínu í hættu.

Hvað eldra fólk varðar bendir nokkuð til þess að hóf­leg neysla geti haft lít­ils­háttar ávinn­ing, en ráð­lagður dags­skammtur sam­kvæmt rann­sókn­inni er þó undir tveimur áfengum drykkjum á dag.

For­svars­menn rann­sókn­ar­innar leggja því til að ráð­legg­ingar um áfeng­is­neyslu verði aðlag­aðar aldri, en gera sér þó fulla grein fyrir því að óraun­hæft sé að ætl­ast til þess að ungt fólk hætti neyslu áfeng­is. Hins vegar sé mik­il­vægt að koma á fram­færi nýj­ustu upp­lýs­ingum svo fólk geti tekið með­vit­aða ákvörðun um eigin áfeng­is­neyslu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki