AirBnB-íbúðir á höfuðborgarsvæðinu aftur orðnar fleiri en 2.000 talsins

Þegar mest lét á árunum 2017, 2018 og 2019 voru yfir 3.000 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu til leigu á AirBnB. Í veirufaraldrinum féll fjöldinn verulega, en í sumar skreið fjöldi íbúða í útleigu á ný yfir 2.000.

Vegna faraldursins komu margar AirBnB íbúðir inn á fasteignamarkaðinn, ýmist til almennrar leigu eða kaupa. Nú eru á ný yfir 2.000 íbúðir til útleigu á síðunni.
Vegna faraldursins komu margar AirBnB íbúðir inn á fasteignamarkaðinn, ýmist til almennrar leigu eða kaupa. Nú eru á ný yfir 2.000 íbúðir til útleigu á síðunni.
Auglýsing

Í sumar fór fjöldi íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem skráðar eru á leigu­síð­una Air­BnB undir þeim for­merkjum að hægt sé að leigja allt heim­il­ið, á ný yfir 2.000, eftir að fjöld­inn hafði dreg­ist veru­lega saman árin 2020 og 2021, í kór­ónu­veiru­far­aldr­in­um.

Enn er þó nokkuð í að fjöldi þeirra íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem skráðar eru á Air­BnB nái sömu hæðum og yfir sum­ar­mán­uð­ina árin 2017, 2018 og 2019, en þá voru jafnan yfir 3.000 íbúðir skráðar til útleigu í heild sinni á leigu­síð­unni.

Mynd: Úr skýrslu ARCUR fyrir borgina.

Þetta kemur fram í skýrslu um fast­eigna­mark­að­inn í Reykja­vík, sem fyr­ir­tækið Arcur ráð­gjöf vann að beiðni borg­ar­yf­ir­valda.

Í grein­ingu fyr­ir­tæk­is­ins segir að árið 2021 hafi farið hægt af stað, hvað varðar aukn­ingu skráðra íbúða á Air­BnB, en að fram­boðið hafi auk­ist smám saman þegar leið á árið.

Auglýsing

Í jan­úar hafði fram­boð eigna á Air­BnB ein­ungis auk­ist um 2,6 pró­sent frá jan­ú­ar­mán­uði 2021, en í júlí var aukn­ingin frá því í júlí­mán­uði í fyrra orðin rúm 96 pró­sent. Í sept­em­ber síð­ast­liðnum voru svo 89,5 pró­sent fleiri íbúðir til útleigu en á sama tíma fyrra, eða rúm­lega 2.000 eign­ir.

Í grein­ingu Arcur segir að það sé ljóst að nokkur fjöldi íbúða sé nú nýttur í þjón­ustu við ferða­menn, jafn­vel þó að fjölgun gisti­rýma á hót­elum hafi verið tals­verð á sama tíma. Sam­kvæmt því sem fram kemur í skýrsl­unni voru hót­el­rými á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 5.500 tals­ins í sum­ar.

Flestar íbúð­irnar í eða nærri mið­borg­inni

Í grein­ingum sem hafa verið gerðar á und­an­förnum árum um stað­setn­ingu þeirra íbúða sem eru aug­lýstar til leigu á Air­BnB hefur komið fram að flestar eru þær í Reykja­vík og hæst hlut­fall þeirra í sjálfri mið­borg­inni, póst­núm­eri 101.

Í rann­sókn á áhrifum Air­Bn­B-út­leigu á hús­næð­is­mark­að­inn sem unnin var árið árið 2019 kom fram að 80 pró­sent skráðra Air­Bn­B-­eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu væru í Reykja­vík og 37 pró­sent í mið­borg­inni.

Sautján pró­­sent eign­anna voru í 105 Reykja­vík, auk þess sem sjö pró­­sent í voru póst­núm­eri 107 Reykja­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent