Ákvörðun Hönnu Birnu eykur kostnað ríkissjóðs vegna verjenda

hannabirna.jpg
Auglýsing

Eitt af síð­ustu verkum Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, áður en hún baðst lausnar frá mál­efnum dóms- og ákæru­valds, var að ­fella úr gildi reglu­gerð þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, Rögnu Árna­dótt­ur, frá árinu 2009, þar sem þókn­anir verj­enda og rétt­ar­gæslu­manna voru tak­mark­aðar við tíu þús­und krónur að hámarki á klukku­stund.

Reglu­gerð Hönnu Birnu er dag­sett 15. ágúst, eða sama dag og opin­berað var að Rík­is­sak­sókn­ari hygð­ist ákæra aðstoð­ar­mann henn­ar, Gísla Frey Val­dórs­son, fyrir meinta aðild hans að leka­mál­inu svo­kall­aða. Þennan sama dag baðst Hanna Birna svo lausnar frá mál­efnum dóms- og ákæru­valds.

Reglu­gerðin frá 2009 var við­bragð stjórn­valda til að bregð­ast við auknum fyr­ir­séðum kostn­aði rík­is­sjóðs vegna verj­enda og rétt­ar­gæslu­manna í kjöl­far banka­hruns­ins.

Auglýsing

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu var kostn­aður rík­is­sjóðs vegna verj­enda og rétt­ar­gæslu­manna röskar 294 millj­ónir króna árið 2009, en reglu­gerðin sem tak­mark­aði þókn­anir til fyrr­greindra tók ekki gildi fyrr en 14. ágúst það ár. Árið 2010 nam kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þessa ríf­lega 254 millj­ónum króna, og lækk­aði lít­il­lega á milli ára vafa­lítið vegna fyrr­greindrar reglu­gerðar frá árinu áður.

Árið 2011 hækk­aði kostn­aður rík­is­sjóðs vegna verj­enda og rétt­ar­gæslu­manna upp í ríf­lega 262 millj­ón­ir, og árið 2012 nam kostn­að­ur­inn hátt í 308 millj­ónum króna. Á síð­asta ári hækk­aði svo kostn­aður rík­is­sjóðs enn frekar vegna þókn­anna til handa verj­endum og rétt­ar­gæslu­mönn­um, og end­aði í tæp­lega 425 millj­ónum króna í lok árs 2013.

Sam­kvæmt laus­legri könnun Kjarn­ans rukka lög­menn og lög­fræði­stofur að jafn­aði um 20 þús­und krónur fyrir hverja klukku­stund, eða tvö­falt hærra en kveðið er á um í reglu­gerð­inni frá árinu 2009 sem inn­an­rík­is­ráð­herra felldi úr gildi í ágúst. Því má áætla með nokk­urri vissu að við­búið sé að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna verj­enda og rétt­ar­gæslu­manna á þessu ári, og þau næstu á eft­ir, muni hækka, í ljósi þess að lög­menn geta nú krafið ríkið um máls­kostnað út frá tíma­gjaldi sínu.

Þess ber þó að geta að það verður áfram í valdi hvers dóm­ara að ákvarða máls­kostnað verj­enda við dóms­upp­kvaðn­ingu, með hlið­sjón af fram­lögðum reikn­ing­um. Til­hneig­ing þeirra hefur verið að ákvarða lægri máls­kostnað en reikn­ingar verj­enda segja til um. Þá gerir ríkið sömu­leiðis kröfu á þann dæmda að hann end­ur­greiði rík­is­sjóði útlagðan kostnað vegna verj­anda hans, og þá veltur end­ur­greiðslan á því hvort við­kom­andi sé borg­un­ar­maður fyrir reikn­ingn­um.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None